Greiðsluáskorun Skatturinn 17. september 2024 00:03 Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 16. september 2024, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. september 2024 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 16. september 2024, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu stuðnings úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi, kílómetragjaldi vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er 13 þúsund kr. fyrir hvert fjárnám. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 17. september 2024 Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á VestfjörðumSýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Mest lesið Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Viðskipti innlent Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Viðskipti erlent Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Samstarf Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Framúrskarandi fyrirtæki Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Ráðin markaðsstjóri Prís Viðskipti innlent Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Viðskipti innlent Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Samstarf Fleiri fréttir Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira
Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á VestfjörðumSýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Mest lesið Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Viðskipti innlent Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Viðskipti erlent Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Samstarf Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Framúrskarandi fyrirtæki Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Ráðin markaðsstjóri Prís Viðskipti innlent Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Viðskipti innlent Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Samstarf Fleiri fréttir Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira
Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf
Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf