Eins og barinn hundur Einar Helgason skrifar 22. ágúst 2024 16:32 Á æskuárum mínum dvaldi ég löngum í sveit hjá afa mínum sem þar var bóndi. Helsti leikfélagi minn og vinur á bænum var hundurinn sem fylgdi mér um hvert fótmál. Ég man að mér þótti afskaplega vænt um hann og fagnaði honum á hverjum morgni þegar ég vaknaði. Reyndar þótti mér vænt um alla hunda og leitaðist gjarnan eftir félagsskap þeirra hvar sem ég sá þá. Og mig minnir jafnvel að hundarnir á næstu bæjum í kring um okkur hafi verið góðir félagar mínir. Þó var þarna á einum bænum sem var undantekning frá þessu því þar bjó karlfjandi sem var orðlagður ruddi bæði við sitt heimilisfólk og dýr. Hann átti stóran svartann hund sem fylgdi honum eftir um hvert fótmál sem kannski var furðulegt því það var ekki hægt að segja að hann væri góður við hann. Hann átti það til að sparka í hann ef honum mislíkaði eitthvað og jafnvel berja hann með svipu eins og ég varð vitni að einu sinni. Ég var oft búin að reyna nálgast þennan hund til þess að vingast við hann en hann sýndi bara tennurnar og urraði. En það furðulega var að þegar karlinn kom út úr bæ eftir að hafa drukkið kaffi og lagði af stað heim til sín fylgdi hundurinn fast á hæla hans. Jafnvel eftir að karlinn hafði sparkað í hann vegna þess að hann var fyrir honum þegar hann var að troða sér í stígvélin. Það má heita furðulegt að mér dettur oft í hug hundurinn svarti þegar maður verðu vitni af því hvernig Íslensk þjóð lætur fara með sig. Hér látum við okkur lynda að lifa í einhverju stórbrengluðu umhverfi í peningamálum sem enginn af siðmenntuðum þjóðum sem við berum okkur saman við myndi sætta sig við. Við jafnvel teljum það eðlilegt að búa við vaxtastig sem er í gangi meðal þjóða sem eiga í blóðugu stríði sín á milli eins og Ukraína og Rússland. Og það furðulega er að það blasir við öllum sem vilja sjá það að auðsöflin hér á landi moka til sín peningum þegar vextir eru í hæstu hæðum og alþýðan er að kikna. Og en furðulegra er að það er hægt að telja stórum hluta þjóðarinnar trú um að við verðum að búa við þetta vegna þess að við erum svo sérstök. Samt blasir það við öllum að það væri hægt að snúa þessu við ef það væri einhver skynsemisglóra hjá þessari þjóð. Nei frekar veljum við að vera eins og hundurinn svarti sem skríður á kviðnum inn í kjörklefana í kosningum og kýs yfir sig aftur og aftur þessa tvo flokka sem eru búnir að skapa þetta þjóðfélag sem við búum við í dag. Getur verið að fólk sem velur þessi öfl yfir sig aftur og aftur sjái ekki hvernig búið er að sníða þetta þjóðfélag eftir þörfum peningaaflana í þessu landi. Það sorglega við þetta allt saman er að við eigum baráttujaxla hérna meðal okkar sem brenna fyrir það að breyta þessu ástandi en vilja ekki fara þá einu leið sem er fær. Þá er ég að tala um fólk eins og formenn verkalýðsfélaga og stjórnmálafólk á þingi sem vilja berjast fyrir réttlátu þjóðfélagi. Nú veit ég að hinn skeleggi verkalýðsforingi á Akranesi hefur haft orð á því að við verðum að kasta þessari Íslensku krónu út í hafsauga og taka upp aðra mynt. Vissulega er ég sammála honum um krónuna en því miður virðist svo vera að hann sé ekki sammála mér um að við verðum að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru. Ég sjálfur er sannfærður um að það sé eina raunhæfa leiðin en hann virðist ekki hafa þær hugmyndir heldur taka heldur upp þá mynt sem okkur hentar. Ég reikna með að verkalýðsforinginn ofan af Akranesi geti farið með þessa þulu til eilífðarnóns án þess að nokkuð breytist. En svo virðist vera að hann hafi verið forritaður gegn ESB og þar við situr. Eins er hægt að nefna baráttukonurnar tvær hjá Flokki Fólksins þær Ingu Sæland og Ásthildi Lóu Þórsdóttir sem ég er ekki í vafa um að séu allar að vilja gerðar að bæta hag þeirra verst settu í þjóðfélaginu. Þar hefur forritunin gegn ESB tekist nokkuð vel og svínvirkar. Enda þarf ekki annað en lesa greinina sem þær skrifa hér á Vísi þar sem þær gera því góð skil hvernig alþýðan engist undan Íslenska fjármálakerfinu en benda ekki á neina lausn. Ég býst við að þessar tvær sómakonur geti hamast í sömu sporum þar til veröldin líður undir lok á meðan ekkert breytist og Tommi hrýtur við hliðina á þeim. Síðan get ég ekki sleppt því að minnast á það hlægilegasta eða kannski það grátlegasta í þessu öllu saman þegar á þriðja hundruð stærstu íslensku fyrirtækin hafa skipt yfir í aðra mynt. Og kannski eru það þeir aðilar sem best standa í samfélaginu og græða á tá og fingri þegar ástandið er sem verst hjá venjulegu fólki. Ég væri ekki hissa þótt þetta lið hafi slegið upp partí núna eftir að seðlabankastjóri ákvað að halda stýrivöxtum áfram á sama stað til þess að fagna áframhaldandi gróða. Nú geri ég ráð fyrir að þeir sem lesi þennan pistil finnist ég kannski orðljótur og í einhverju skapvonskukasti. Ég viðurkenni að það er alveg laukrétt og svo ég endurtaki það sem ég hef sagt áður. Hvernig í ósköpunum getur Íslensk alþýða sætt sig við þetta klikkaða peningaumhverfi ár eftir ár. Getur verið að hatrið og andúðin á ESB sem ég tel vera einu raunhæfu leiðina sé svo djúpstæð að stór hluti Íslendinga vilji frekar láta níðast á sér. Og svo er það furðulegasta að Íslenska þjóðin sem er að stærstum hluta komnir inn í sambandið og flestir eru sáttir við. Og þar vilja þeir vera frekar heldur en að ganga alla leið þar sem almenningur getur fengið mestan ágóðann. Það er ekki skrítið þótt mér detti stundum í hug að stór hluti af Íslendingum vilji láta níðast á sér. Og endilega ef þið viljið halda því áfram þá er aðferðin sú að koma skríðandi eins og svarti hundurinn forðum inn í kjörklefann og kjósa sömu kvalaranna yfir sig aftur og aftur. Verði ykkur að góðu. Höfundur er fyrrverandi bílstjóri Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Efnahagsmál Mest lesið Teppaleggjum ekki íslenska náttúru með vindorku Halla Hrund Logadóttir Skoðun Halldór 23.11.2024 Halldór Miskunnsami nýmarxistinn Kári Allansson Skoðun Furðuleg réttlæting á hækkun verðtryggðra vaxta Marinó G. Njálsson Skoðun Kosningaloforðið sem gleymdist? Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Vaxtahækkanir og brotið traust - hver ber ábyrgð? Sandra B. Franks Skoðun Ísland og orkuskiptin: Styðjum þróun á jarðhita og alþjóðlegt samstarf Ester Halldórsdóttir Skoðun Raforka er ekki eina orkan! Dagur Helgason Skoðun Sögufölsun í heimildarþætti RÚV — Svör óskast Jóna Benediktsdóttir,Hjörtur Hjartarson,Katrín Oddsdóttir,Kjartan Jónsson,Kristín Erna Arnardóttir,Sigríður Ólafsdóttir,Þórir Baldursson Skoðun Kjósum á næsta kjörtímabili Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hefur sálfræðileg meðferð áhrif á líkamlegt heilbrigði? Rúnar Helgi Andrason skrifar Skoðun Vaxtahækkanir og brotið traust - hver ber ábyrgð? Sandra B. Franks skrifar Skoðun Rödd friðar þarf að hljóma skærar Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Af skynsemi Vegagerðarinnar Magnús Rannver Rafnsson skrifar Skoðun Nýja stjórnarskráin — Alþingi rjúfi stöðnunina með stjórnlagaþingi Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar Skoðun Nýtt fangelsi – fyrir öruggara samfélag Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Ísland og orkuskiptin: Styðjum þróun á jarðhita og alþjóðlegt samstarf Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ærin verkefni næstu ár Ásbjörg Kristinsdóttir skrifar Skoðun Kominn tími á öðruvísi stjórnmál Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Furðuleg réttlæting á hækkun verðtryggðra vaxta Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Raforka er ekki eina orkan! Dagur Helgason skrifar Skoðun Miskunnsami nýmarxistinn Kári Allansson skrifar Skoðun Skapandi skattur og skapandi fólk Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Teppaleggjum ekki íslenska náttúru með vindorku Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Kjósum á næsta kjörtímabili Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Kosningaloforðið sem gleymdist? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Eru aðventan og jólin kvíða- eða tilhlökkunarefni? Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Óframseljanlegt DAGA-kerfi Kári Jónsson skrifar Skoðun Nýtanleg verðmætasköpun um allt land Jóhann Frímann Arinbjarnarson skrifar Skoðun Geðrænn vandi barna og ungmenna Eldur S. Kristinsson skrifar Skoðun Það er kominn verðmiði á fangelsið en hvað má ungmenni í alvarlegum vanda kosta? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Hinn opni tékki samgöngusáttmálans – ljósastýring og Sundabraut Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Eru sumir heppnari en aðrir? Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Við þurfum stjórnmálamenn sem skilja mikilvægi stærstu atvinnugreinar landsins Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Kallað eftir fyrirsjáanleika í opinberum framkvæmdum Þorsteinn Víglundsson ,Jónína Guðmundsdóttir,Karl Andreassen skrifar Skoðun Sjálfstætt fólk Kristín Linda Jónsdóttir skrifar Skoðun Óstjórn í húsnæðismálum Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Arfur stjórnmálanna 2024 Elvar Eyvindsson skrifar Skoðun Kjósum rétt(indi) fyrir fatlað fólk! Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Frelsi er allra, ekki fárra útvaldra Jón Óskar Sólnes skrifar Sjá meira
Ísland og orkuskiptin: Styðjum þróun á jarðhita og alþjóðlegt samstarf Ester Halldórsdóttir Skoðun
Sögufölsun í heimildarþætti RÚV — Svör óskast Jóna Benediktsdóttir,Hjörtur Hjartarson,Katrín Oddsdóttir,Kjartan Jónsson,Kristín Erna Arnardóttir,Sigríður Ólafsdóttir,Þórir Baldursson Skoðun
Skoðun Nýja stjórnarskráin — Alþingi rjúfi stöðnunina með stjórnlagaþingi Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
Skoðun Ísland og orkuskiptin: Styðjum þróun á jarðhita og alþjóðlegt samstarf Ester Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Það er kominn verðmiði á fangelsið en hvað má ungmenni í alvarlegum vanda kosta? Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Hinn opni tékki samgöngusáttmálans – ljósastýring og Sundabraut Eiríkur S. Svavarsson skrifar
Skoðun Við þurfum stjórnmálamenn sem skilja mikilvægi stærstu atvinnugreinar landsins Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Kallað eftir fyrirsjáanleika í opinberum framkvæmdum Þorsteinn Víglundsson ,Jónína Guðmundsdóttir,Karl Andreassen skrifar
Ísland og orkuskiptin: Styðjum þróun á jarðhita og alþjóðlegt samstarf Ester Halldórsdóttir Skoðun
Sögufölsun í heimildarþætti RÚV — Svör óskast Jóna Benediktsdóttir,Hjörtur Hjartarson,Katrín Oddsdóttir,Kjartan Jónsson,Kristín Erna Arnardóttir,Sigríður Ólafsdóttir,Þórir Baldursson Skoðun