Lífið

Sóldís Vala er Ung­frú Ís­land

Eiður Þór Árnason skrifar
Sóldís Vala Ívarsdóttir hefur hlotið titilinn Ungfrú Ísland 2024.
Sóldís Vala Ívarsdóttir hefur hlotið titilinn Ungfrú Ísland 2024. Stefán Jón Ingvarsson

Sóldís Vala Ívarsdóttir var í kvöld krýnd Ungfrú Ísland 2024 og mun keppa fyrir hönd Íslands í Miss Universe sem fram fer í Mexíkó síðar á árinu. Sóldís Vala er átján ára gömul og var fulltrúi Árbæjar í keppninni í ár sem fram fór í Gamla bíói.

Tekur hún við af Lilju Sif Pétursdóttur sem hreppti titilinn Ungfrú Ísland í fyrra og krýndi í kvöld arftaka sinn. Sóldís Vala er á öðru ári sínu í menntaskóla og stefnir í flugmannsnám að lokinni útskrift.

Að hennar sögn eru aðaláhugamálin hreyfing og heilsutengd málefni. Sóldís Vala æfði fimleika í tíu ár, frá tveggja ára aldri, og færði sig svo yfir í fótbolta. Hún hefur einnig mikinn áhuga á tísku og förðun. Rætt var við hana í viðtali fyrr í mánuðinum.  

Horfa má á fleiri myndbrot á sjónvarpsvef Vísis og keppnina í heild sinni í spilaranum fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

Fattaði að þetta væri alls ekki amma hennar

Sóldís Vala Ívarsdóttir er á öðru ári sínu í menntaskóla og stefnir að fara í flugmannsnám að því að lokinni menntaskólagöngu. Sóldís hefur mjög fjölbreytt áhugamál en hennar aðaláhugamál er hreyfing og heilsutengd málefni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.