Lífið

Rapparinn Tra­vis Scott hand­tekinn í París

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Slagsmál brutust út milli Travis Scott og lífvarðar hans.
Slagsmál brutust út milli Travis Scott og lífvarðar hans. AP

Rappstjarnan Travis Scott hefur verið handtekinn í París á lúxushótelinu George V, fyrir „ótilgreinda ofbeldistilburði“ gegn öryggisverði.

Frá þessu greinir fréttastofan Reuters.

Öryggisvörðurinn hafði reynt að stöðva slagsmál milli Scott og lífvarðar hans, að sögn saksóknarans í París.

Að sögn nokkurra franskra miðla var hann drukkinn.

Scott var handtekinn í Flórída í júní síðastliðnum fyrir ósæmilega hegðun undir áhrifum vímuefna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.