Kristján Flóki heim í FH en Gyrðir og Ástbjörn fara heim í KR Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. ágúst 2024 17:16 Kristján Flóki er genginn í raðir FH á ný. Vísir/Bára Dröfn Kristján Flóki Finnbogason er genginn í raðir uppeldisfélags síns, FH, á nýjan leik. Hann kemur til liðsins frá KR, en á sama tíma fara þeir Ástbjörn Þórðarson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson frá FH til KR.
Ástbjörn og Gyrðir eru uppaldir KR-ingar og skrifa undir fimm ára samning við Vesturbæjarliðið. Samningar þeirra við FH áttu að gilda út næsta tímabil, sem og samningur Kristjáns Flóka við FH. „Það gleður okkur alltaf að fá KR-inga aftur heim og er það mikið fagnaðarefni að fá þá Gyrði og Ástbjörn aftur í Frostaskjólið. Gyrðir getur leyst flestar stöður á vellinum en er miðvörður að upplagi og er Ástbjörn varnarmaður/hægri bakvörður,“ segir í tilkynningu KR-inga. „Við bjóðum ykkur velkomna á æskuslóðirnar strákar og hlökkum til að sjá ykkur blómstra í KR treyjunni á ný.“ Þá greindu FH-ingar einnig frá heimkomu Kristjáns Flóka á samfélagsmiðlum sínum, eins og sjá má hér fyrir neðan. Kristján Flóki er kominn heim🫡 pic.twitter.com/jBXp8Qo6FN— FHingar (@fhingar) August 6, 2024 Kristján Flóki lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir FH árið 2012 áður en hann gekk í raðir FCK ári síðar. Hann lék svo aftur með FH á árunum 2015-2017, en reyndi svo aftur fyrir sér í atvinnumennsku með norska liðinu Start og sænska liðinu Brommopojkarna áður en hann snéri heim til Íslands árið 2019 og hefur leikið með KR síðan.
Besta deild karla FH KR Mest lesið Segist bara hafa óskað dómurunum gleðilegra jóla Körfubolti Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Fótbolti Meikle skaut Littler skelk í bringu Sport Versta frumraun í úrvalsdeild? Körfubolti Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Fótbolti Dagskráin í dag: Áttundi dagur heimsmeistaramótsins Sport Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Fótbolti Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Fótbolti Atletico rændi sigrinum í blálokin Fótbolti Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH „Orð geta ekki lýst því hversu eyðilagður ég er“ Fernukonan komin heim og áritar í Smáralind í dag Englendingar syrgja mann úr heimsmeistaraliðinu frá 1966 Emelíu sýnt mikið traust og samningurinn framlengdur: „Við sáum gæðin í sumar“ Rice og Calafiori klárir en Crystal Palace verður án Eze Dele Alli ekki í leikformi og farinn frá Everton Meiðslalistinn lengist í Mílanó Tvö mörk skoruð fyrstu tvær mínúturnar í sigri Bayern Mourinho heldur áfram að hella sér yfir dómara: „Þetta var skelfilegt. Hversu lengi var boltinn í leik?“ „Svekkjandi fyrir Víkinga“ ef leikurinn fer fram erlendis Ísak Bergmann skoraði í slæmu tapi Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings Áfall bætist við ógöngur Man. City Króatíski metalhausinn á að bjarga málunum Sjá meira
Mourinho heldur áfram að hella sér yfir dómara: „Þetta var skelfilegt. Hversu lengi var boltinn í leik?“