Ferli Theódórs Elmars ekki lokið: „Gríðarlegur léttir“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. júlí 2024 15:03 Theódór Elmar Bjarnason slapp við krossbandsslit. Vísir/Diego Knattspyrnumaðurinn Theódór Elmar Bjarnason fékk heldur betur góðar fréttir í dag þegar hann komst að því að hann væri ekki með slitið krossband eins og óttast hafði verið.
Í gær, föstudag, var greint frá því að Theódór Elmar, leikmaður KR í Bestu-deild karla, hafði orðið fyrir hnémeiðslum á æfingu hjá liðinu í vikunni. Ekki var ljóst hversu alvarleg meiðslin væru. Theódór Elmar staðfesti þó sjálfur í samtali við Vísi í dag að krossbandið væri heilt. Theódór Elmar, sem er orðinn 37 ára gamall, segir að hann hafi fundið fyrir miklum létti, enda hefði ferli hans að öllum líkindum verið lokið ef að um krossbandsslit væri að ræða. „Þetta er auðvitað gríðarlegur léttir. Þetta hefði bara verið búið ef það væri slitið,“ sagði Theódór Elmar í samtali við Vísi í dag. „Það er ekki alveg klárt hvað ég verð lengi frá. Þetta verða tvær, fjórar eða sex vikur, en ég verð klár í lokasprettinn á tímabilinu.“ Hann segist í það minnsta ætla að klára núverandi samning áður en hann tekur einhverskonar ákvörðun um það hvenær skórnir fara á hilluna. „Já, ég á alveg nóg eftir. Ég klára allavega þetta tímabil og á svo eitt eftir af samningnum,“ sagði Theódór Elmar.
Besta deild karla KR Mest lesið Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Dagskráin í dag: Tími fyrir endurheimt Sport Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Fleiri fréttir Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Sjá meira