Lífið

Simmi Vill spilaði Skítakall við nýju kærustuna

Boði Logason skrifar
Simmi Vill og Hafrún hafa verið saman í nokkra mánuði og dvelja nú erlendis í sumarfríi.
Simmi Vill og Hafrún hafa verið saman í nokkra mánuði og dvelja nú erlendis í sumarfríi. Samsett Vísir

Sigmar Vilhjálmsson, athafna- og veitingamaður, frumsýndi kærustuna sína á Instagram í gær. Sú heppna heitir Hafrún Hafliðadóttir. Fjórtán ára aldursmunur er á parinu.

Simmi Vill og Hafrún hafa verið að stinga saman nefjum í nokkra mánuði. Á Instagram í gær endurbirti Simmi færslu frá Hafrúnu þar sem þau sitja úti að spila Skítakall og Simmi heldur á hvítvínsglasi. Þau virðast vera erlendis í fríi og njóta lífsins í botn.

Sól, skítakall og sólgleraugu. Simmi og Hafrún virðast alsæl saman í sólinni.Instagram/simmivill

Hafrún er fædd árið 1991 en Simmi árið 1977.

Hafrún og Simmi eiga samtals sex drengi úr fyrri hjónaböndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.