Cara, sem er fædd árið 1992, hefur átt viðburðaríka ævi og setið fyrir hjá stærstu tískurisum heims. Sömuleiðis hefur hún farið með hlutverk í bíómyndum á borð við Suicide Squad og er með 41,5 milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlinum Instagram.
Hún hefur ekki alltaf átt sjö dagana sæla og fór meðal annars í meðferð árið 2022 eftir að hafa sést við flugvöll í mjög svo annarlegu ástandi. Að hennar sögn hefur hún haldið sér edrú síðan.
Þá kviknaði í húsi hennar í Los Angeles í mars á þessu ári.
Ástin virðist vera henni öflugt haldreypi í lífinu en 5. júní birti hún hjartnæma færslu á Instagram þar sem hún fagnaði stórum tímam´ptum, tveggja ára sambandsafmæli hennar og Minke. Þar skrifar hún meðal annars:
„Tvö töfrandi ár með þér og svo margar myndir af okkur að kyssast fyrir framan hluti. Þessi síðustu tvö ár hafa verið heilmikið líf. Mikið af breytingu, þroska, sársauka og mikilvægast af öllu ást og ég er svo heppin að hafa fundið hina fullkomnu manneskju til að ferðast með í gegnum hæðir og lægðir lífsins. Ég get ekki ímyndað mér að lifa lífinu án þín.
Ég eyddi svo löngum tíma í að finna félaga minn í glæpum (e. partner in crime) og ekki grunaði mig að það væri einhver sem ég gekk í skóla með (og var skotin í). Hlakka til margra fleiri ára af okkur að vera við sjálfar.“
Minke heitir réttu nafni Leah Mason og kemur frá London. Hún og Cara þekktust í æsku og fór rómantíkin að gera vart við sig þeirra á milli fyrir rúmum tveimur árum. Minke byrjaði tónlistarferilinn átján ára gömul og skrifaði þá undir samning við plötuútgáfu í Nashville þar sem hún gaf út tónlist undir eigin nafni. Fljótt fór þó hana að skorta innblástur og fann sig ekki þannig að hún breytti um stefnu og varð að tónlistarkonunni Minke. Hún er með um 155 þúsund mánaðarlega hlustendur á streymisveitunni Spotify og eru sum lög hennar með yfir 10 milljónir streyma.
Hér má sjá fleiri myndir af Cöru á Glastonbury:



