Tilkynnt var um hvarf Slater fyrir rúmri viku. Lögreglan á Spáni hefur framkvæmt ítarlega leit en síðasta þekkta staðsetning Slater er í fjalllendi við Rural de Teno þjóðgarðinn. Leit hefur einnig farið fram í bænum Masca og á Los Chrstianos svæðinu.
Greint var frá því í gær að leitarhundar hafi verið fluttir frá meginlandi Spánar, Madríd, til að aðstoða við leitina. Hundarnir eru þjálfaðir til að skima víðáttumikil svæði.
Í umfjöllun breska miðilsins Guardian segir að lögregla hafi notið liðsinnis björgunarsveitar, slökkviliðs og ýmissa sjálfboðaliða sem hafi þrætt fjallvegi í nágrenninu.
Á sama tíma eru í spjallborð í Bretlandi rauðglóandi vegna hvarfs Slater og segir í frétt Guardian að netverjar hafi ýmsar kenningar um það hvar hann er og hvað hafi komið fyrir.
Síðasta manneskjan sem Slater talaði við var Lucy vinkona hans en þau höfðu verið saman á tónlistarhátíð en hún farið heim á undan honum. Hann sagði henni að síminn væri að verða batteríslaus, að hann væri þyrstur og týndur og hefði skorið sig á kaktus.
Um hálf milljón hefur skráð sig í hóp á Facebook sem er tileinkaður leitinni að Slater. Stjórnendur hópsins eru vinir og fjölskyldumeðlimir sem hafa svo ekkert með annan hóp að gera sem var líka stofnaður. Sá hópur er einskonar umræðuhópur um hvarf Slater þar sem fólk birtir sínar skoðanir og samsæriskenningar um hvarf hans.
Alls eru um 288 þúsund í hópnum og hefur fólk lagt fram ýmsar kenningar. Eins og að hann hafi orðið fyrir hákarlaárás, að marokkósk gengi hafi rænt honum og að hann hafi sjálfur logið til um hvarfið til að safna pening frá almenningi. Þá hafa einhverjir nefnt mafíuna og að hún hljóti að tengjast málinu.
Deildu mynd af íslenskri strönd
Aðrir segja að vinkona hans sé ekki til að og að flugvöllurinn í Manchester hafi ekki verið rýmdur vegna rafmagnsleysis. Þá var í síðustu viku birt mynd af einhverju sem virtist vera lík í fjöru við hótelið þar sem Slater gisti í Los Cristianos. Myndin reyndist svo vera tekin á Íslandi.
Móðir Slater, Debbie Duncan, segir þessar vangaveltur á netinu „hræðilegar“ og að spænska lögreglan telji að þær geti tafið rannsóknina. Rannsókn lögreglu er enn í gangi og er haft eftir Duncan að hún skoði alla möguleika og vísbendingar.
„Ég er sorgmædd vegna athugasemda ykkar,“ sagði Duncan í færslu á GoFundMe síðu sem sett var upp til að styðja við fjölskylduna. „Ég vona að ég sé ekki að taka son minn heim í líkpoka,“ sagði hún.