Elíta menningar og örlög þjóðar Tómas Ísleifsson skrifar 30. maí 2024 17:00 Ragnar Kjartansson er ekkert merkilegri Íslendingur, en við hin, þótt hann hafi vinnu af því að smíða listaverk og foreldrar hans séu leikarar. Ragnar skrifar þ. 29. maí 2024 inn á visir.is grein þar sem hann andmælir grein Auðar Jónsdóttur skáldkonu á Heimildinni þ. 27. maí 2024. Ragnar segist vera í elítunni, er það menningarelítunni? Grein hans „Hér er elíta…“ sýnir að Ragnar er víða með á nótunum, en hann sýnir hvergi að hann hafi skilning á hvað þarf til, svo að Íslendingar fái varið sín fjöregg gegn ránum og landráðum. Enda krefst vettvangur Ragnars þess ekki að hann þurfi að temja sér einbeitta rökhugsun stærðfræði og raunvísinda. Vissulega gefa góðar listir lífinu meira gildi, en listamönnum er illa treystandi til að vaka yfir sjálfstæði okkar og frelsi. Til að vaka yfir hamingju okkar er betur treystandi þeim sem hafa menntun á breiðum grunni og þjálfun í að komast að niðurstöðu með því að rekja tengsl milli orsakar og afleiðingar. Íslensk þjóð er heimsk ef hún tekur meira mark á skoðun Ragnars myndlistamanns, en á skoðun Haraldar Ólafssonar eðlisfræðings á slóðinni: https://heimssyn.blog.is/blog/heimssyn/ Við Haraldur vitum að auðlindir Íslands eru grundvöllur fyrir frelsi þjóðarinnar og það verður best tryggt við kosningarnar á laugardag með kjöri Arnars Þórs Jónssonar í embætti forseta lýðveldisins. Greinar Auðar og Ragnars snúast um hvort Katrín Jakobsdóttir muni verða íslenskri þjóð til gæfu ef hún verður forseti Íslands. Margir hafa lofað grein Auðar Jónsdóttur skáldkonu á Heimildin: „Þið eruð óvitar! hlustið á okkur“ Já, greinin er snilld. Fyrst og fremst vegna þess að Auður leitar sannleikans af einlægni og mikilli rökvísi. Auður metur sannleikann meir fyrir sitt sálarheill, heldur en vinahilli ef hún verður krafin um að velja á milli. Það hefur dregið sundur með henni og Katrínu frá árinu 2017, hvers vegna? Gunnar Smári og Björn Þorláksson kryfja sálarparta Katrínar á Samstöðinni við „Rauða borðið 4. apríl – Katrín…“. Slóð á samtal þeirra félaga um Katrínu er frá ca. 17.mín. til 30. mín eða lengur ef þú nennir að hlusta: Augljóst er að greining Björns á Katrínu, með tilvísun í spjall hans við brotthrakta Vinstri-græna, var svo nærri réttu að Katrín hefur forðast að koma í viðtal á Samstöðinni – manneskjan er pólitískt lævís/undirförul, þótt hún brosi mót viðmælendum. Það girðir að sjálfsögu ekki fyrir að hún hafi ýmsa mannkosti. Þeir kostir vega ekki á móti göllum, sem leiða til landráða. Sumarið 2019 skrifaði ég fjórar greinar í Morgunblaðið gegn orkupakka 3. Þá var ég hrópandinn í eyðimörkinni á flokksfundum Vinstri grænna í austur í Öræfum og á Hótel Íslandi. Ræðum mínum var ekki svarað einu orði, ég var hunsaður. Einnig þegar ég lagði Morgunblað dagsins með grein minni á borð Katrínar og Svandísar. Þær létu, sem þær hvorki sæju mig eða blaðið, ég var óverðugur. Litlu eftir mína ræðu á Hótel Íslandi gekk Katrín fram hjá mér, drap hendi á mína öxl, hægði ekki för sína og sagði: „Þakka þér fyrir Tómas.“ Hegðun Katrínar ber vott um sýndarmennsku. Vilji hennar til landráða virðist mér einbeittur. Mér fannst undarlegt að ganga um í fundarsal og viðbrögð fundarmanna sýndu að ég var ósýnilegur. Hjarðhegðun flokksmanna á fundunum árið 2019, var á einn veg. Enginn hafði áhuga á að tala við mig og alls ekki um fjöregg þjóðarinnar. Þöggunin var alger. Hildur Sif Thorarensen skrifar 26. maí 2024 18:02 „Flestir halda að forsetaembættið sé puntembætti sem snýst mest um að taka í hendina á ráðamönnum og mæta prúðbúin í teboð. Raunin er hins vegar sú að í þessu embætti felst mikið meira og mikilvægara hlutverk og því má ekki gleyma þegar krossinn er settur við þann frambjóðanda er við teljum að muni sinna embættinu best.“ Slóð: https://www.visir.is/g/20242575770d/thetta-snyst-um-orkunaÞetta snýst um orkuna Hildur Sif vill að Halla Hrund verði forseti og Arnar Þór verði hæddur þingmaður þess minnihluta alþingismanna, sem talar fyrir endurskoðun á EES samningnum. Ég treysti Höllu Hrund ekki til að standa í lappirnar gegn samvaxinni valdaklíku Alþingis. Halla Hrund hefur sýnt stefnuleysi og viðsnúning til að redda sér í djobbið og ekki veit ég hvort hún er flekklaus. Ég er ekki dómbær á hvort erlendu valdaöflin eru hættuleg – ég hef ekki kynnt mér málið. Ég hlustaði á samtals tveggja tíma orðavaðal Höllu Hrundar hjá RUV og Samstöðunni. Froðusnakkið og merkingarleysið var svo mikið að ég þurfti að beita mig hörðu til að nenna að hlusta á það allt. Er hún slík að hún standi á sínu? Sumir telja Höllu Hrund meiri vonarpening en Katrínu Jakobsdóttur. Það kann að vera rétt, enda fæ ég ekki betur séð, en að Katrín hafi selt sálu sína íhaldsdólgum Íslands? Ég álít samþykki Katrínar Jakobsdóttur og annarra alþingismanna á orkupakka þrjú þann 2. september 2019 vera landráð. Mér er slétt sama hvort Katrín kallar sig vinstri eða ekki, en ég er ósáttur við að hún er ekki þjóðholl og hún er líkleg til að halda áfram að svíkja sína þjóð. Katrínu Jakobsdóttur er ekki treystandi til að vaka yfir auðlindum Íslands og hamingju þjóðarinnar. Þessi ritsmíð, auk greina um auðlindir Íslands og ásælni erlendra afla í þær verða einnig sýnilegar á slóðinni: https://www.landskuld.is Höfundur er framhaldsskólakennari í raungreinum og stærðfræði, félagi í Vinstri-grænum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Forsetakosningar 2024 Forsetakosningar 2024 Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar