Afmælisafsláttur Skanva í fullum gangi Skanva.is 27. maí 2024 10:23 Tvöfaldar svalahurðir njóta mikilla vinsælda hjá gluggaframleiðandanum Skanva en þær má panta eftir máli í vefverslun. Skanva fagnar nú 6 ára afmæli á íslenskum markaði. Danski gluggaframleiðandinn Skanva fagnar 6 ára afmæli á íslenskum markaði. 45% afsláttur er af gluggum og hurðum út maí og boðið upp á köku og kaffi í sýningarsal, Fiskislóð 73.
Guðrún Harpa, markaðsstjóri segir Íslendinga hafa verið hálf feimna við fyrirkomulagið til að byrja með en Skanva er netverslun þar sem viðskiptavinir panta sjálfir eftir máli. Skanva á Íslandi leggur þó mikla áherslu á persónulega þjónustu þó kaupin fari fram á vefnum. Guðrún Harpa markaðsstjóri Skanva á Íslandi „Sumum fannst þetta skrýtið, að fara bara á netið og panta glugga og hurðir. Það treysta sér heldur ekki allir til að taka málin sjálfir og standa með því en við höfum lagt mikla vinnu í þróa vefsíðuna með ítarlegum leiðbeiningum og myndböndum. Við hvetjum fólk líka til að hringja í okkur og fá aðstoð, við gefum okkur alltaf tíma til að spjalla og viljum fá að heyra um verkefnin hjá fólki og framkvæmdir til að geta leiðbeint því eins vel og hægt er. Við getum einnig teiknað einingar fyrir fólk ef það er með sérstakar hugmyndir og það kostar ekki neitt,“ segir Guðrún Harpa. Svalahurðir með frönskum gluggum setja mikinn svip á heimilið. Úrvalið í vefverslun Skanva ríkulegt „Gluggaeiningar sem hægt er að nýta í byggingu sólskála eru vinsælar núna og einnig tvöfaldar svalahurðir. Rennihurðir út á pall hafa líka notið mikilla vinsælda en í okkar íslenska veðurfari þarf að huga vel að því hvernig vindurinn stendur upp á rennihurðir,“ útskýrir Guðrún. „Við mælum frekar með tvöföldum svalahurðum fyrir íslenskar aðstæður. Með þeim fæst líka mikil opnun og í raun stærri gluggi.“ Hún segir álklædda timburglugga frábæra fyrir íslenskt veðurfar en timburgluggar standi þó líka alltaf fyrir sínu. „Við erum vön timburgluggum og -hurðum hér á Íslandi, sem er kannski dálítið sérstakt miðað við veðurfarið hér. Timbrið finnst mörgum hlýlegra og svo líta sumir bara á það sem gæðastundir að sinna viðhaldi og fara út að mála á góðviðrisdögum.“ Hægt er að panta ólíkar tegundir glugga með ýmsum opnunarmöguleikum. Stækkandi á verktakamarkaði „Við erum stækkandi á verktakamarkaðnum þar sem smiðir og verktakar kunna vel að meta að geta séð um allt sjálfir og drifið pöntun í gang á netinu. Margir versla hjá okkur aftur og aftur. Við gerum einnig tilboð í stærri verkefni og erum vel samkeppnishæf. Skanva er stórt fyrirtæki með verslanir á öllum Norðurlöndunum og í Þýskalandi. Framleiðslulínan okkar er því alltaf í fullum gangi og í krafti þess höfum við bolmagn til að bjóða vel án þess að slaka neitt á gæðum.“ Vörurnar frá Skanva standast íslenskar veðuraðstæður. Tíu ára ábyrgð er á öllum gluggum og hurðum. Kvistalaus kjarnviður „Framleiðandinn kaupir einnig einstaklega gott timbur í gluggana og við bjóðum kjarnvið sem kemur úr miðjum stofni og því mun þéttari viður. Við erum virkilega stolt af þeim gæðum sem við bjóðum og við höfum afsannað þá mýtu að gott verð þýði lakari gæði,“ segir Guðrún Harpa.
Hús og heimili Byggingariðnaður Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Menning Fleiri fréttir Ný vetrarlína Moomin væntanleg í takmörkuðu upplagi „Bio-Kult er eitt af því sem er alltaf til á okkar heimili“ Bragi Páll og Bergþóra með hryllilega fyndnar hrekkjavökusögur Ný eldhúslína sem sækir innblástur í náttúruna Sprite Zero Klan gefur út SS pylsulagið í fullri lengd Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Sjá meira