Skoðun

Styrk hönd og fim

Torfi H. Tulinius skrifar

Forsetaframbjóðendurnir eru flestallir geðþekkt fólk sem koma úr mörgum geirum þjóðfélagsins. Í hópnum eru m.a. fegurðardís, lögmaður, fræðimaður, skemmtikraftur, sjómaður og leikkona, að ógleymdum embættismönnum sem sinna mikilvægum störfum fyrir almenning. Öll hafa þau eitthvað til brunns að bera.

Einn þeirra stendur þó upp úr og eru fyrir því margar ástæður. Katrín Jakobsdóttir hefur sýnt og sannað á ferli sínum að hún hefur framar öðrum þá kosti sem prýða þurfa forseta lýðveldisins. Sem alþingismaður og ráðherra hefur hún áralanga reynslu af stjórnkerfinu, bæði löggjafarþinginu og framkvæmdavaldinu. Hún hefur bæði verið í stjórnarandstöðu og stjórn, m.a. á tímum þegar virkilega hefur gefið á bátinn í þjóðlífinu, á árunum eftir hrun en líka síðar, sem forsætisráðherra, þegar samfélagið þurfti að takast á við farsóttir og náttúruhamfarir. Þegar okkar tímar verða gerðir upp af sagnfræðingum framtíðarinnar munu þeir vafalítið sjá hvað sú hönd sem stýrði þjóðarskútunni í þessum ólgusjó var bæði styrk og fim. Það var Katrín sem hélt um stýrið með miklum sóma. Eðlislæg greind hennar samfara mikilli reynslu, margháttuð tengsl hennar í þjóðfélaginu, hæfileikinn til að ná til fólks, og það traust sem hún ávinnur sér hjá viðmælendum sínum með látlausri og heiðarlegri framkomu, allt þetta hefur skipt máli við að ná þeim árangri sem hún hefur sannarlega náð sem forystumaður í landsmálum.

Ýmsir urðu hvumsa, þar á meðal sá sem þetta ritar, þegar Katrín myndaði stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2017 og aftur 2021. Það voru fáir eða engir aðrir kostir í boði og ávinningurinn af setu hennar í stjórninni er ótvíræður, bæði í umhverfismálum og kjaramálum alþýðu, en hvað báða þessa málaflokka varðar er enginn vafi á því að þær framfarir sem orðið hafa þar eru Katrínu og flokki hennar að þakka. Enn meira máli skiptir þó að myndun þessarar ríkisstjórnar vann gegn óheillaþróun sem hófst á árunum eftir hrun og hefur sett mark sitt á mörg önnur þjóðfélög á síðari árum. Það er hin mikla skautun umræðunnar, til að mynda í Bandaríkjunum, þar sem fólk á öndverðum meiði getur ekki einu sinni talað saman, hvað þá tekið sameiginlegar ákvarðanir. Hvað sem annað verður sagt um stjórnarmyndunina 2017, þá sneri hún þessari þróun við hér á landi.

Katrín Jakobsdóttir getur nefnilega talað við alla. Falleg framkoma hennar, greind og samskiptahæfni sameinar fólk en sundrar ekki. Hún hefur ítrekað lyft umræðunni og forðað okkur frá því að lenda ofan í fánýtum pólitískum skotgröfum. Því mun ég greiða henni atkvæði mitt þann 1. júní nk. og hvet alla til að gera slíkt hið sama.

Höfundur er prófessor.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×