Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. maí 2024 20:56 Southampton er einum sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni. Michael Steele/Getty Images Southampton tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik gegn Leeds um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er liðið vann 3-1 sigur gegn WBA.
Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum á heimavelli WBA og því var allt í járnum fyrir leik kvöldsins sem fram fór á St. Mary's, heimavelli Southampton. Staðan var enn markalaus þegar fyrri hálfleik lauk og það var ekki fyrr en á 56. mínútu að William Smallbone tókst að brjóta ísinn fyrir heimamenn. Adam Armstrong tvöfaldaði svo forystu liðsins á 78. mínútu áður en hann gerði endanlega út um einvígið með öðru marki sínu sjö mínútum síðar. Cedric Kipre klóraði reyndar í bakkann fyrir gestina á áttundu mínútu uppbótartíma, en þá var það orðið of seint. Niðurstaðan því 3-1 sigur Southampton sem mætir Leeds í hreinum úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni þann 26. maí næstkomandi. WBA þarf hins vegar að gera sér annað tímabil í B-deildinni að góðu.
Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Sjá meira