Stuðningsmenn PSG bauluðu á Mbappé í síðasta heimaleiknum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. maí 2024 15:00 Kylian Mbappé og félagar í Paris Saint-Germain fengu franska meistarabikarinn afhentan eftir tapið fyrir Toulouse í gær. getty/Franco Arland Kylian Mbappé á væntanlega ekkert alltof góðar minningar frá síðasta heimaleik sínum með Paris Saint-Germain.
Frönsku meistararnir tóku á móti Toulouse í gær og töpuðu, 1-3. Mbappé kom PSG yfir á 8. mínútu en Toulouse skoraði næstu þrjú mörk og tryggði sér sigurinn. Á föstudaginn tilkynnti Mbappé það formlega sem allir vissu; að hann myndi yfirgefa PSG þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar. Mbappé verður því aðeins leikmaður PSG í nokkrar vikur í viðbót. Og í gær lék hann sinn síðasta leik fyrir liðið á Parc des Princes. Þrátt fyrir að hafa unnið sex meistaratitla með PSG og vera markahæsti leikmaður í sögu félagsins bauluðu stuðningsmenn þess á Mbappé þegar nafn hans var lesið upp fyrir leikinn gegn Toulouse. Síðustu dagar hafa ekki verið góðir fyrir PSG en á þriðjudaginn í síðustu viku tapaði liðið fyrir Borussia Dortmund, 0-1, í seinni leiknum í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það þýðir að Mbappé yfirgefur PSG án þess að hafa unnið Meistaradeildina með liðinu. PSG tapaði einvíginu gegn Dortmund, 2-0 samanlagt. Mbappé skoraði átta mörk í Meistaradeildinni í vetur en var ekki á skotskónum gegn Dortmund. PSG er löngu búið að tryggja sér franska meistaratitilinn og fékk bikarinn afhentan eftir leikinn gegn Toulouse. Mbappé er langmarkahæstur í frönsku úrvalsdeildinni með 27 mörk.
Franski boltinn Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met Sjá meira