Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Atli Ísleifsson skrifar 24. apríl 2024 12:43 Konan kom til landsins með flugi frá Kaupmannahöfn 4. febrúar síðastliðinn. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu, Georgia Birliraki, í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa smyglað tæplega 19 þúsund töflum af MDMA með flugi til landsins.
Konan, sem er fimmtug að aldri, var ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en hún kom efnin til landsins með flugi frá Kaupmannahöfn 4. febrúar síðastliðinn. Í ákæru kom fram að efnin hafi verið falin í ferðatösku og til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Birliraki játaði skýlaust sök, en í dómi segir að hún hafi ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi svo kunnugt sé. Af gögnum megi ráða að hún hafi ekki verið eigandi efnanna heldur samþykkt að flytja þau til landsins gegn greiðslu. Við ákvörðun refsingar verði ekki litið framhjá því að hún hafi flutt mikið magn af MDMA með afar mikla hættueiginleika. Þó hún hafi verið burðardýr sé ljóst að innflutningurinn hafi ekki orðið að veruleika án hennar aðkomu. Er talið að hagnaður af sölu efnanna á fíkniefnamarkaði hér hefði numið um eða yfir sextíu milljónum króna. Hæfileg refsing var metin tveggja og hálfs árs fangelsi, en til frádráttar kemur gæsluvarðhald sem hún hafði sætt frá komu til landsins. Konunni var jafnframt gert að greiða 1,3 milljónir króna í sakarkostnað.
Dómsmál Fíkniefnabrot Smygl Tollgæslan Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira