Steggjun endaði á árshátíð RÚV Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 23. apríl 2024 09:30 Snorri Másson átti líklega eina skemmtilegasta helgi lífs síns síðustu helgi. Nánast allir landsmenn nutu lífsins síðastliðna viku. Hækkandi sól og hærra hitastig á sama tíma og nánast allar árshátíðir landsins og önnur gleði á sama tíma. Það var allskonar í gangi.
Þannig mætti nefna steggjanir en félagar Snorra Mássonar ritstjóra komu honum heldur betur á óvart síðustu helgi eins og frægt er orðið og fengu Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins og Bergþór Ólason þingmann Miðflokksins til að banka upp á hjá honum. Þeir stigu út úr Mercedes Benz bíl, þóttu nokkuð reffilegir og þá var Sigmundur með sógleraugu þrátt fyrir grámyglulegt veður. Félagarnir með Skoðanabræður í broddi fylkingar enduðu svo kvöldið óvænt á árshátíð RÚV í Hvalasafninu á Granda um miðnætti. Í hið minnsta einn þeirra enda að vinna hjá RÚV, fréttamaðurinn Oddur Þórðarson. Á meðan var nóg annað um að vera. Magnús Davíð Norðdahl lögmaður og Pírati gerði sér lítið fyrir og lagði ríkið fyrir MDE á þriðjudag. Hann endaði kvöldið sitt í hrókasamræðum við Illuga Gunnarsson fyrrverandi ráðherra í Krónunni Austurveri. Sama kvöld verslaði Birna María Másdóttir, betur þekkt sem Bibba, sér sólarvörn í Apótekaranum í Austurveri. Síðar í vikunni sást Sigríður Hrund Pétursdóttir forsetaframbjóðandi spóka sig um á Suðurlandsbraut með fjölskyldunni og kosningastjóranum Hörpu Hjálmtýsdóttur.Tommi Steindórs dagskrárstjóri X977 og útvarpsmaður þjóðarinnar sást á svipuðum tíma rölta í vinnuna úr World Class Laugum. Sagan segir að hann hafi tekið sprett á brettinu á hraða 14. Geri aðrir betur. Sigurjón Kjartansson verslaði sér í matinn í Hagkaup í Garðabæ á föstudaginn. Á meðan sást Kristófer Acox landsliðsmaður í körfu með ljóshærðri skvísu á Flatey í Garðabænum. Þar var líka leikarinn Björn Thors með sonum sínum og líka tónlistarmaðurinn JóiPé með kærustunni. Haukur Már Hauksson, betur þekktur sem Haukur Chef og eigandi Yuzu sást á hvítri Teslu á Hverfisgötu aðfaranótt laugardags. Patrekur Andrés Axelsson spretthlaupari naut lífsins á Petersen svítunni þetta kvöld og á meðan var Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður á Kalda bar. Jón Arnór Stefánsson körfuboltamaður naut lífsins á Röntgen en Berglind Festival sjónvarpskona og Björn Hlynur Haraldsson voru á Kaffibarnum. Á laugardag fékk Laddi grínisti lífsins sér samloku á Lemon á Suðurlandsbraut. Þar var líka Vésteinn Hafsteinsson ólympíufari. Á meðan var crossfit drottningin Annie Mist með fjölskyldunni á leiksvæðinu hjá Hagkaup í Smáralind. Þorvaldur Þórðarson formaður Alþýðufylkingarinnar var svo staddur í Kringlunni á laugardag. Laugardagskvöldið skellti Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra sér á sýningu Borgarleikhússins á Eitruð lítil pilla. Þar var líka Hjalti Már Björnsson, einn þekktasti læknir landsins. Þetta kvöld var svo heljarinnar veisla meðal annars hjá Framsóknarmönnum. Lilja Alfreðsdóttir viðskipta-og menningarmálaráðherra skellti sér upp á svið í góðu stuði þegar Patrik Atlason tók sitt frægasta lag, Prettyboytjokkó. Á sunnudag tók Hannes Sigurjónsson formaður Félags íslenskra lýtalækna við verðlaunum fyrir frábæran árangur í hestaíþróttum á uppskeruhátið Áhugamannadeildar Spretts sem haldin var í veislusal Samskipahallarinnar í Kópavogi. Hjörvar Hafliðason, doktorinn sjálfur, eiginkonan Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka í sjávarútvegi nutu lífsins á ókunnum stað erlendis með þeim Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur sjónvarpskonu og kærasta hennar Tómasi Má Sigurðssyni forstjóra HS Orku. Á meðan sleikti kærustuparið, þau Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri og Erna Mist Yamagata myndlistarkona og pistlahöfundur sólina í Vesturbæjarlauginni síðdegis. Hanna Katrín Fririksson þingflokksformaður Viðreisnar hóf vikuna svo á mánudegi á að arka yfir Lækjargötu að morgni. Hún virtist vera að flýta sér. Í hádeginu á sólríkum mánudegi naut Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona lífsins á útisvæði Fjallkonunnar með Sigurði Orra Kristjánssyni verkefnastjóra samfélagsmiðla og viðburða Viðreisnar og fleiri vinum. Sigríður Thorlacius söngkona nýtti svo geggjaða veðrið í að hjóla Aðalstræti.
Frægir á ferð Ríkisútvarpið Ástin og lífið Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira