Lega lýðveldisins Íslands Eiríkur Ingi Jóhannsson skrifar 22. apríl 2024 10:30 Íslenska þjóðin býr við ofur öfl nátturunar, einangrun frá meginlöndunum stóru og deilir engum landamærum með annarri þjóð. Þessi Fallega eyja okkar er köld en samt svo hlý og gjöful að margmenni flykkist til að skoða hana og aðrir koma til að leita nýrra tækifæra. Við erum rík að fæðast á þessu skeri okkar, í landi með fólksfjölda sem víða erlendis er á við meðalstóran bæ. Öðrum er ljóst að á Íslandi eiga flestir þokkalegt líf og vilja margir leita nýs lífs hjá okkur. Gestrisin höfum við verið en margur landinn telur nú nóg komið. Þetta er skiljanleg afstaða enda orðið þröngt um manninn og nýbúar á hverju leiti bæði löglegir og ei. Allir vita að ferðaþjónustan á stærstan þátt í nýbúa straumnum, sumir myndu kalla það luxusvanda en nú eru nýbúar einnig farnir að kvarta og segja nóg er komið. Þá verður að spyrja sig af hverju stöðin hans Leifs Heppna skuli standa gal opin til margra ára. Það má eflaust kalla óstjórn þeirra er hafa ráðið þessi ár að svara fyrir. Hví hafa óstjórn á þessum mála-flokki þegar svo auðvelt er að hafa stjórn á ferðum manna til þessa eyríkis og nýta legu lands og hafa góða stjórn á þessu flæði manna? Hingað á enginn að komast án tilskilinna leyfa, það er einfalt að hafa stjórn á farþega flæði til landsins.Ekki er það góðmennska að fólk staldri hér við í örvætingu eftir nýju lífi eða arði og bíði úrlausnar, oft til margra ára til að vera endanlega fylgt úr landi. Sumt af þessu fólki eru börn og jafnvel börn að fá sína fyrstu minningar á landi okkar og upplifa áfall við að þurfa að fara og kveðja nýja vini sína. Þetta er ekki það sem við viljum vera þekkt fyrir. Stjórn eða óstjórn, hvort er manneskjulegra? Jú, sum okkar viljum hjálpa öllum og látum hjartað ráða, Opin landamæri munu einn daginn nást, þegar efnahags-jöfnuður næst um heims kringluna en sá tími er ekki kominn. Þessi óstjórn kostar bæði mikið fé og sálræn vandamál, bæði hjá þeim sem eru kvaddir með valdi og hinum, sem þurfa kveðja nýju vinina. Ekki má gleyma starfsfólkinu sem þarf að eiga við þennan málaflokk og þá streitu sem það verður fyrir í störfum sínum. Lausnin er að hafa stjórn á landamærum okkar. Það fer betur með bæði fé og menn. Við getum gert betur fyrir minna fé því óstjórn kostar meir en stjórn. Lögum þetta sem fyrst og fáum forseta í brúna sem mun takast á við þetta verkefni. Lega lands skiptir máli við fleira en landamæragæslu! Milliríkja-samningar vega þungt og eru álag á landið. Þar sem kröfur eru lagðar fram og vitnað í samingja sem við erum búin að skrifa undir. Það má spyrja sig, hví þarf land sem er svo einangráð og ekki í sambærlegum aðstæðum og meiginlandslöndin sem búa í nánd við hvort öðru og vilja þá opnari samkeppnis-umhverfi sem krefst þá milliríkja-samingja til að sanngjörn samkeppni geti verið milli þeirra og landmæri opinn. Ísland býr ekki við þessi skilyrði og á því að krefjast undanþágu frá öllum skilyrðum þessa saminga sem koma ekki að beinni samkeppni. Þar sem innlands-markaður okkar er ekki í beinni samkeppni við meiginlandið á að losa okkur undan þessum þvíngunum og leyfa innanlands- markaðnum að búa við eðilegri markaðlögmál, aðlöguð að okkar sérstöðu. Ríkis-eignir Sumir eru ákáfir í að selja þessar flottu eignir allra landsmanna, sumir hafa þá skoðun að ríkið eigi ekki að eiga neinar eignir, hvorki fasteignir né fyrirtæki og vísa oft í samkeppnis-rök og milliríkja-samninga.Frekar ber að spyrja, af hverju má hlutafélag okkar allra (ríkið) ekki eiga eignir og fyrirtæki, svo lengi sem einstaklings-framtakið sé ekki hindrað? Þá sérstaklega þegar ríkjandi meirihluti vill ekki selja þessar eignir og villstanda vörð um þær. Það á ekki að vera þannig að minni-hluti ráði þessari för og að milliríkja samningar séu notaðir sem verkfæri til að koma eignum þjóðarinnar í sölu. Stjórnar hefðir sem myndaðar hafa verið í gegnum árin eru ábyrg fyrir því að sérhagsmuna-hópar komist í þá stöðu að stjórna bæði framkvæmdavaldinu og löggjafarvaldinu. Slíkir stjórnarhættir geta tæplega kallast hálft-Lýðræði, þar sem kjósendur þessara stjórnameirihluta eru lang-flestir mótfallnir þessum áætlunum.Forsetaembættið er ábyrgt fyrir þessari stjórnar-hefð og að eignir landsmanna séu skertar með hverju árinu. Forsetinn setur ríkisráðið og leggur blessun sína yfir þessa valda-hefð. Ég kalla eftir að það ríkji fullt lýðræði og að löggjafarvaldið fái að starfa eins og ættlast var til af því.Sem sér eining sem er ekki stjórnað af framkvæmdavaldiu, né eigi áhrif þessara tveggja ríkisvalda að hafa nokkur áhrif á dómsvaldið. Þegar þessar einingar ríkisvaldsins fá að starfa eins og má ætla hafi verið markmið stjórnarskrárinnar, þá mun ríkja lýðræði fullvalda þjóðar en ekki hálf lýðræðið sem við búum við núna. Hugum vel að vali forseta og skiljum að ef forsetinn vinnur samkvæmt því valdsviði sem embættið er látið fá samkvæmt stjórnaskrá þessa lands, þá má leysa flest vandamál sem hafa myndast við þessa stjórnar-hefur drottnað yfir landsmönnum. Lengi lifi Ísland Höfundur er forsetaframbjóðandi. Meðmæla söfnun: Eiríkur Ingi Jóhannsson. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðun: Forsetakosningar 2024 Mest lesið Sjálfstæðismenn boða víst skattalækkanir á þá efnamestu Haukur V. Alfreðsson Skoðun Fellur helsti stuðningsmaður menningarmála af þingi? Magnús Logi Kristinsson Skoðun Viltu borga 200 þús á mánuði eða 600 þús á mánuði af íbúðinni? Hildur Þórðardóttir Skoðun Almageddon? Eyþór Kristleifsson Skoðun Það sem ekki má fjalla um fyrir kosningar til Alþingis Árni Jensson Skoðun ESB kærir sig ekkert um Ísland í jólagjöf Ole Anton Bieltvedt Skoðun Óstjórn í húsnæðismálum Ragnar Þór Ingólfsson Skoðun Betri Strætó 2025 og (svo) Borgarlína Dagur B. Eggertsson Skoðun Afvegaleidd umræða um áskoranir heilbrigðiskerfisins Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Skoðun Vímuefnið VONÍUM Haraldur Ingi Haraldsson Skoðun Skoðun Skoðun Nýtanleg verðmætasköpun um allt land Jóhann Frímann Arinbjarnarson skrifar Skoðun Geðrænn vandi barna og ungmenna Eldur S. Kristinsson skrifar Skoðun Það er kominn verðmiði á fangelsið en hvað má ungmenni í alvarlegum vanda kosta? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Hinn opni tékki samgöngusáttmálans – ljósastýring og Sundabraut Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Eru sumir heppnari en aðrir? Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Við þurfum stjórnmálamenn sem skilja mikilvægi stærstu atvinnugreinar landsins Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Kallað eftir fyrirsjáanleika í opinberum framkvæmdum Þorsteinn Víglundsson ,Jónína Guðmundsdóttir,Karl Andreassen skrifar Skoðun Sjálfstætt fólk Kristín Linda Jónsdóttir skrifar Skoðun Óstjórn í húsnæðismálum Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Arfur stjórnmálanna 2024 Elvar Eyvindsson skrifar Skoðun Kjósum rétt(indi) fyrir fatlað fólk! Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Frelsi er allra, ekki fárra útvaldra Jón Óskar Sólnes skrifar Skoðun Menntun og tækifæri: Hvað veljum við fyrir Ísland? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Eyðimerkurganga kosningabaráttunnar? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Krónan eða evran? Kostir og gallar Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Kjóstu meiri árangur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvaða hlekkur ert þú í keðjunni? Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Laxeldið verður ekki stöðvað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Þroskamerki þjóðar Tómas Torfason skrifar Skoðun Afvegaleidd umræða um áskoranir heilbrigðiskerfisins Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Var stytting náms til stúdentsprófs í þágu ungmenna? Sigurður E. Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem ekki má fjalla um fyrir kosningar til Alþingis Árni Jensson skrifar Skoðun Launafólk sýndi ábyrgð – Hvað með bankana og fjármagnseigendur? Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Sjálfstæðar konur? Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Fullveldinu er fórnað með aðild að Evrópusambandinu Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Endurhugsum dæmið, endurnýtum textíl Guðbjörg Rut Pálmadóttir skrifar Skoðun Betri Strætó 2025 og (svo) Borgarlína Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Um kosningar, gulrætur og verðbólgu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gæti aukin einkavæðing og skólaval í grunnskólakerfinu bætt námsárangur og aukið jafnrétti? Jón Páll Haraldsson,Linda Heiðarsdóttir,Ómar Örn Magnússon skrifar Skoðun Fellur helsti stuðningsmaður menningarmála af þingi? Magnús Logi Kristinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Það er kominn verðmiði á fangelsið en hvað má ungmenni í alvarlegum vanda kosta? Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Hinn opni tékki samgöngusáttmálans – ljósastýring og Sundabraut Eiríkur S. Svavarsson skrifar
Skoðun Við þurfum stjórnmálamenn sem skilja mikilvægi stærstu atvinnugreinar landsins Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Kallað eftir fyrirsjáanleika í opinberum framkvæmdum Þorsteinn Víglundsson ,Jónína Guðmundsdóttir,Karl Andreassen skrifar
Skoðun Afvegaleidd umræða um áskoranir heilbrigðiskerfisins Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Launafólk sýndi ábyrgð – Hvað með bankana og fjármagnseigendur? Finnbjörn A. Hermannsson skrifar
Skoðun Gæti aukin einkavæðing og skólaval í grunnskólakerfinu bætt námsárangur og aukið jafnrétti? Jón Páll Haraldsson,Linda Heiðarsdóttir,Ómar Örn Magnússon skrifar