Innlent

Lóan er komin

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Hann smellti þessa óskýru mynd af einni lóanna en myndir í betri upplausn munu berast fréttastofu bráðum.
Hann smellti þessa óskýru mynd af einni lóanna en myndir í betri upplausn munu berast fréttastofu bráðum. Guðmundur Hjörtur Falk Jóhannesson

Lóan er komin til landsins að kveða burt snjóinn og leiðindin. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur staðfestir það í samtali við fréttastofu.

Til lóunnar sást í Garðinum á Suðurnesjum en lóan kemur yfirleitt um þetta leyti. Þó segir Jóhann að það komi fyrir að einhverjar örfáar lóur haldi sig á landinu yfir vetrartímann sem geti skekkt matið. Lóan kom í fyrri kantinum þetta árið að mati Jóhanns.

Guðmundur Hjörtur Falk Jóhannesson sá minnst fjórar lóur ásamt félaga sínum í Garðinum í dag og náði af þeim myndum.

Lóan er af mörgum talin helsti vorboði Íslendinga, með vísan til ljóðs Páls Ólafssonar sem margir Íslendingar kannast við, og kunna jafnvel utanbókar:

Lóan er komin að kveða burt snjóinn,

að kveða burt leiðindin, það getur hún.

Hún hefur sagt mér, að senn komi spóinn,

sólskin í dali og blómstur í tún.

Hún hefir sagt mér til syndanna minna,

ég sofi of mikið og vinni ekki hót.

Hún hefir sagt mér að vakna og vinna

og vonglaður taka nú sumrinu mót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×