Lífið

Sunn­eva þurfti að vera vakandi í að­gerð

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sunneva var opinská með kvíðan sem hún upplifði fyrir aðgerð. Nú er hún að jafna sig.
Sunneva var opinská með kvíðan sem hún upplifði fyrir aðgerð. Nú er hún að jafna sig.

Sunneva Einarsdóttir, einn liðsmanna LXS-hópsins og samfélagsmiðlastjarna, er að jafna sig eftir aðgerð á fótum. Hún var ekki svæfð á meðan aðgerð stóð og segist lítið hafa náð að sofa nóttina áður. 

Sunneva opnar sig upp á gátt um málið á samfélagsmiðlinum TikTok. Þar útskýrir hún að hún þurfi á aðgerð að halda á báðum löppum, vegna þess að hún er með svokallaða litlutáarskekkju (e. bunions).

Sunneva ræðir málið á fræðandi og opinskáan hátt.

„Þetta er búið að  valda mér svo mikilum sársauka að ég get ekki verið í skóm lengur, ég get ekki einu sinni verið í Crocs án þess að meiða mig. Þetta er búið að vera að versna sjúklega hratt seinustu mánuði,“ segir Sunneva á einlægum nótum á miðlinum.

„Ég er samt búin að tala um þetta í þrjú, fjögur ár að ég verði að fara í þessa aðgerð en nú er þetta orðið nauðsynlegt, af því að þetta er orðið það vont að ristin á mér alltaf orðin blá bólgin eftir langan dag í skóm.“

Var vakandi í aðgerðinni

Hún segir að morguninn fyrir aðgerð hafi hún farið í langa og góða sturtu. Hún hafi hugað vel að húðinni.

„Það er mjög mikilvægt að vera allavegana með gott skincare,“ segir Sunneva sem var grátbólgin eftir svefnlausa nótt. Sunneva var vakandi á meðan aðgerðinni stóð sem henni þótti ógnvekjandi tilhugsun.

„Ég þarf að vera fokking vakandi á meðan þeir skera beinin mín í sundur,“ segir Sunneva sem mætti með heyrnatól til að loka á umhverfishljóðin.

@sunnevaeinars

örugglega mest vulnerable vlog sem ég hef tekið, viljiði part.2?

original sound - Sunneva Einars

@sunnevaeinars

Part.2 allir að kommenta þætti/myndir I need it

original sound - Sunneva Einars





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.