Körfubolti

Martin skilaði sínu í naumum sigri

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Martin Hermannsson átti flottan leik í liði Alba Berlín í kvöld.
Martin Hermannsson átti flottan leik í liði Alba Berlín í kvöld. Getty Images/Aitor Arrizabalaga

Alba Berlín vann eins stigs sigur á Rostock Seawolves í efstu deild karla í þýska körfuboltanum, lokatölur 76-75. Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson skilaði sínu í liði Berlínar.

Leikurinn gat vart verið meiri spennandi en á endanum höfðu Martin og félagar betur, naumlega þó Martin skoraði 5 stig, gaf 4 stoðsendingar og tók 2 fráköst. Alba er í 3. sæti deildarinnar með 15 sigra eftir 20 leiki.

Elvar Már Friðriksson og félagar í PAOK máttu þola tap gegn Kolossos Rhodes í efstu deild Grikklands í dag, lokatölur 95-79 Rhodes í vil. Elvar Már átti líkt og svo oft áður frábæran leik. Hann skoraði 20 stig, gaf 5 stoðsendingar og tók 3 fráköst. PAOK er í 8. sæti með 8 sigra í 20 leikjum.

Á Spáni skoraði Tryggvi Snær Hlinason tvö stig í tapi Bilbao gegn Granada á útivelli, lokatölur 87-79. Bilbao er í 12. sæti með 9 sigra í 24 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×