Neytendur

Hefja upp­byggingu náttúrubaða við upp­haf Gullna hringsins

Jón Þór Stefánsson skrifar
Gönguleiðin í Reykjadal
Gönguleiðin í Reykjadal Hveragerði

Hveragerðisbær og Reykjadalsfélagið hafa náð samningi um uppbyggingu á Árhólmasvæðinu í Hveragerði. Samningurinn felur í sér kaup Reykjadalsfélagsins á byggingarrétti og úthlutun lóða.

Árhólmasvæðið liggur við rætur Reykjadalsins. Í tilkynningu um samninginn er fullyrt að á svæðið sæki hundruð þúsunda manna á ári hverju.

Fyrsti áfangi uppbyggingarinnar mun felast í uppbyggingu náttúrubaða sem hafa fengið nafnið Reykjaböðin. Fram kemur að verkefnið sæe fullfjármagnað og framkvæmdir hafnar.

„Árhólmar henta einstaklega vel fyrir baðstarfsemi en mikill jarðhiti er á svæðinu ásamt góðu aðgengi að heitu vatni og hefur verið ánægjulegt að vinna með Veitum að góðum lausnum á því sviði. Náttúrfegurð er mikil á svæðinu og staðsetningin er líka frábær þar sem hún stutt frá Reykjavík og við upphaf Gullna hringsins ásamt góðu aðgengi fyrir gesti og heimafólk,“ segir í tilkynningunni.

„Upplifun gesta verður í fyrirrúmi og náttúran í nágrenninu þar sem hverir bubbla og reykur stígur upp úr jörðinni allt um kring. Náttúruleg efni verða í forgrunni við byggingu baðanna og markmið að skapa kósý stemningu fyrir gesti á öllum árstíðum. Baðlónið mun bjóða uppá fjölda nýjunga sem ekki hafa áður sést á Íslandi og verður gaman að kynna frekar þegar fram líða stundir.“

Hugmyndir að uppbyggingu og starfsemi svæðisins.Hveragerði

Reykjadalsfélagið er fyrir með starfsemi á Árhólmasvæðinu. Árið 2021 opnaði Reykjadalsskálinn sem þjónustar veitingar, verslun og salerni og sinnir upplýsingagjöf. Á svæðinu er einnig starfrækt afþreyingarstarfsemi, en nýverið opnaði ein lengsta sviflína í Evrópu.

Staðsetning Árhólma / Reykjadals og ökuleið frá Gróðurhúsinu í HveragerðiHveragerði

Í tilkynningunni segir að um sé að ræða stórt skref í uppbyggingu Hveragerðisbæjar.

„Það hefur verið afar áhugavert að fylgjast með uppbyggingu Reykjadalsfélagsins í Hveragerði á undanförnum árum. Við erum ánægð með þennan stóra samning sem verður mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna, atvinnulífið og samfélagið í bænum,“ er haft eftir Jóhönnu Ýr Jóhannsdóttur, formanni bæjarráðs Hveragerðisbæjar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×