Bikarkeppni Svíþjóðar er með það fyrirkomulag að skipta liðunum í átta fjögurra liða riðla, efsta lið hvers riðils heldur svo áfram í 8-liða úrslit.
BK Häcken endaði í 2. sæti riðilsins eftir svekkjandi 1-1 jafntefli gegn Brommapojkarna í dag. BK Häcken komast snemma yfir en gestirnir jöfnuðu undir lok fyrri hálfleiks. Valgeir Lunddal spilaði svo seinni hálfleik leiksins.
Halmstad stóð uppi sem sigurvegari í sínum riðli eftir 1-0 sigur gegn Värnamo og heldur áfram í 8-liða úrslit. Birnir Snær Ingason var í byrjunarliði Halmstad annan leikinn í röð en komst ekki á blað. Gísli Eyjólfsson var á bekknum en kom inn á völlinn á 69. mínútu. Þeir gengu báðir til liðs við Halmstad fyrr í vetur.
Átta leikir fara fram á morgun og á mánudag fara svo síðustu fjórir leikir riðlakeppninnar fram en þar mætast meðal annars Íslendingaliðin Sirius og Norrköping, með þá Óla Val Ómarsson og Arnór Ingva Traustason innanborðs.
Dregið verður í 8-liða úrslit strax og allir leikir riðlakeppninnar klárast á mánudagskvöld. Átta liða og undanúrslitin fara svo fram næstu tvær helgar, 9.-10. mars og 16.-17. mars. Úrslitaleikurinn verður spilaður á Uppstigningardegi, 9. maí.