Ítrekað bent á að gullhúðun ESB reglna draga úr samkeppnishæfni
![Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra.](https://www.visir.is/i/65171120FE86041923E9C306E08EC23091240A2A2E04060EF40457895D77E76E_713x0.jpg)
Samtök iðnaðarins (SI) fagna skipan starfshóps utanríkisráðherra um aðgerðir gegn gullhúðun og telja tímabært að horft verði til samkeppnishæfni Íslands við hvers kyns lagasetningu, hvort sem um ræðir innleiðingu á regluverki Evrópusambandsins í gegnum EES, eða séríslensk lög. Samtökin nefna átta dæmi um gullhúðun sem átt hefur sér stað á undanförnum árum og vekja athygli á að upptalningin sé ekki tæmandi.