Erlent

Birti nöfn banamanna og hlaut þyngri dóm en þeir

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Mörgum Belgum þótti dómur banamannanna of vægur.
Mörgum Belgum þótti dómur banamannanna of vægur. Getty/Charles M Vella

Flæmskur maður á þrítugsaldri hlaut í dag þriggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að birta nöfn og myndir nemenda sem báru ábyrgð á dauða annars nemenda í grófri busun.

Árið 2018 lést hinn tvítugi Sanda Dia vegna líffærabilunar eftir að hann hafði verið látinn drekka mikið magn lýsis og áfengis og látinn standa úti í frosti ásamt öðrum liðum grófrar busavígslunnar í hið flæmska Reuzegombræðralag í Háskólanum í Leuven í Belgíu. Samkvæmt réttarmeinafræðingi var megin dánarorsök mikið saltmagn lýsisins sem Sanda var látinn drekka. Hann var af senegölskum ættum og þótti mörgum Belgum málið tengjast kynþætti hans.

Sluppu með samfélagsþjónustu og lága sekt

Hinn 24 ára Nathan Vandergunst sem gengur undir nafninu Acid í netheimum birti myndband á YouTube þar sem hann nafngreindi þá sem báru ábyrgð á andláti Sandas en þeir voru dæmdir til samfélagsþjónustu og aldrei nafnbirtir. Í myndbandi birti hann einnig myndir af þeim.

Honum verður einnig gert að greiða foreldrum einna þeirra nafngreindu tæpar þrjár milljónir króna vegna skaða sem veitingarekstur þeirra hefur orðið fyrir sökum nafnbirtinganna. Nathan var dæmdur fyrir áreitni, brot á friðhelgi einkalífs og ærumeiðingu.

Nathan segist hafa tekið málin í eigin hendur þegar nöfn banamannanna voru ekki birt opinberlega og gerði þá téð myndband. Hins vegar birtist þar nafn nemenda sem tók ekki þátt í busavígsluninni og varð í kjölfarið fyrir miklu áreiti. Veitingastaður foreldra þessa nemenda hafi fengið holskeflu af lélegum dómum og gabbbókunum og þau kröfðust því skaðabóta. Nemandinn sjálfur krafðist ekki nema einnar táknrænnar evru.

Sjái ekki eftir neinu

Hollenski miðillinn RTL greinir frá því að úrskurðurinn hafi komið Nathan í uppnám en að hann væri stoltur af verknaðinum.

„Það er áfall að heyra dómarann segja: „Þriggja mánaða fangelsi,“ jafnvel þó að það sé skilorðsbundið. Þetta verður á sakaskránni minni en það sama er ekki að segja um Reuzegommerana,“ segir Nathan. Reuzegommer er meðlimur bræðralagsins sem vígt var í þegar harmleikurinn átti sér stað.

Hann segist samt sem áður munu halda ótrauður áfram og að hann sjái ekki eftir birtingunni. Hann ætli sér ekki að áfrýja dómnum og hyggi á að halda áfram að gera myndbönd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×