Erlent

Freista þess að hindra byggingu risaplast­verk­smiðju Ratclif­fe

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Ratcliffe vandar Evrópusambandinu ekki kveðjurnar og segir löggjöf og skrifræði á svæðinu „kæfandi“.
Ratcliffe vandar Evrópusambandinu ekki kveðjurnar og segir löggjöf og skrifræði á svæðinu „kæfandi“. Getty/Bryn Lennon

Hópur umhverfisverndarsamtaka hyggst höfða mál til að freista þess að koma í veg fyrir byggingu efnavinnsluvers í Antwerpen í Belgíu en um yrði að ræða stærsta ver þessarar tegundar sem reist er í Evrópu í 30 ár.

Það er Inos, fyrirtæki í eigu Íslandsvinarins og auðjöfursins Jim Ratcliffe, sem hyggur á framkvæmdirnar. Verkefnið ber yfirskriftina Project One.

Client Earth skilaði inn gögnum til dómstóla í gær fyrir hönd umhverfisverndarsamtakanna en þau segja yfirvöld ekki hafa tekið tillit til áhrifa efnavinnsluversins á fólk, náttúruna og loftslagið þegar leyfi voru gefin út.

Um er að ræða svokallaða „cracking“ verksmiðju, þar sem etýlen er aðskilið frá náttúrulegu gasi en efnið er síðan unnið áfram til notkunar í plastframleiðslu. Samkvæmt umfjöllun Guardian er verksmiðjan af þeirri stærðargráðu að framleiðslugeta hennar er umfram allt sem áður hefur sést í Evrópu.

Verksmiðjan er sögð munu kosta um þrjá milljarða evra en náttúruverndarsamtökin unnu áfangasigur fyrir dómstólum í fyrra þegar þau héldu því fram að Ineos hefði ekki upplýst yfirvöld um heildaráhrif verkefnsins á nærliggjandi umhverfi.

Dómstóllinn, sem fjallar um framkvæmdaleyfi, tók undir málflutning samtakanna og sagði að yfirvöld hefðu ekki átt að gefa út leyfi með takmarkaðar upplýsingar. Ný leyfi voru hins vegar gefin út í janúar síðastliðnum.

Ratcliffe sagði af því tilefni við dagblaðið De Tijd að hann væri „mikill aðdáandi“ Bart De Wever, borgarstjóra Antwerpen, og forsætisráðherrans Alexander De Croo. Verkefninu hefði ekki verið hrundið af stað nema með stuðningi yfirvalda.

Auðjöfurinn sagði löggjöf og skrifræði Evrópu „kæfandi“ en talsmenn Client Earth benda hins vegar á gríðarlega skaðsemi plasts, sem hefur verið að koma betur og betur í ljós. Plastagnir finnast nú út um allan heim og jafnvel í öndunarfærum manna og dýra.

„Project One myndi kynda undir aukna plastframleiðslu þegar við erum nú þegar komin á þann stað að hún má ekki aukast,“ segir Tatiana Luján hjá Client Earth. „Plast er umhverfismál, mál sem varðar fólk og loftslagið. Að heimila byggingu stærstu plastverksmiðju Evrópu væri ekki bara staðbundið umhverfisslys heldur aðför á alþjóðavísu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×