Öruggt hjá Eyjamönnum fyrir norðan Smári Jökull Jónsson skrifar 17. febrúar 2024 16:31 Elmar Erlingsson skoraði sex mörk fyrir ÍBV í dag. Vísir/Anton Brink ÍBV vann öruggan sigur á KA í Olís-deild karla í handknattleik í dag. ÍBV er í 4. sæti deildarinnar eftir sigurinn en KA í 9. sætinu og þarf að fara að ná í stig ætli liðið sér í úrslitakeppni.
ÍBV mætti til Akureyrar í dag eftir að hafa tryggt sér sæti í undanúrslitum Powerade-bikarsins í vikunni. KA tapaði sínum bikarleik hins vegar gegn Stjörnunni og getur því einbeitt sér að Olís-deildinni. Sigur Eyjamanna í dag var í raun aldrei í neinni sérstakri hættu. Eftir nokkuð jafnar upphafsmínútur náði ÍBV fimm marka forskoti í seinni hluta síðari hálfleik og var með 17-13 forystu í hálfleik. KA náði reyndar að minnka muninn einu sinni í eitt mark snemma í síðari hálfleiknum en ÍBV náði vopnum sínum á ný og var með þægilegt forskot frá miðjum hálfleiknum. Munurinn varð mestur átta mörk og ÍBV fagnaði að lokum 37-31 sigri. Gauti Gunnarsson átti stórleik fyrir ÍBV og skoraði tíu mörk úr ellefu skotum gegn sínum gömlu félögum en hann lék með KA á síðustu leiktíð. Elmar Erlingsson bætti sex mörkum í sarpinn og Daniel Vieira skoraði fimm mörk. Petar Jokanovic og Pavel Miskevich vörðu samtals 15 skot í marki ÍBV. Hjá KA var Ott Varik markahæstur með átta mrk og Einar Rafn Eiðsson skoraði fimm. Bruno Bernat varði 13 skot í marki KA.
Olís-deild karla ÍBV KA Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Fótbolti Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Fótbolti Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Fótbolti Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Sjá meira