Skoðun

Stað­reyndir um Ra­pyd

Garðar Stefánsson skrifar

Að undanförnu hefur fámennur hópur fólks haft sig mikið frammi um Rapyd. Rangfærslur í málflutningi þessa hóps hvað varðar Rapyd eru margar. Þeim verður ekki öllum svarað hér. Fullyrðingar eins og að Rapyd starfi á landránsbyggðum Ísraels á Vesturbakkanum og að félagið styðji hernað Ísraelshers á Gasa eru alrangar. Vegna umræðunnar vil ég koma eftirfarandi á framfæri:

Rapyd á Íslandi er íslenskt fyrirtæki sem byggir á áratuga sögu rekstur Valitor og Korta, sem nú hafa verið sameinuð undir merkjum Rapyd. Fyrirtækið starfar sem íslenskt hlutafélag og er kennitala félagsins frá 1983. Hjá Rapyd á Íslandi starfa um 180 einstaklingar. Félagið greiðir skatta og skyldur á Íslandi.

Rapyd á Íslandi leggur metnað sinn í að þjónusta íslenskt samfélag með því að veita fyrsta flokks greiðslumiðlun. Rapyd á Íslandi hefur lengi lagt áherslu á að gefa til samfélagsins enda eru rætur félagsins djúpar í íslensku samfélagi.

Rapyd á Íslandi er í eigu alþjóðlega fjártæknifyrirtækisins Rapyd og starfar undir merkjum þess. Fyrirtækið er með starfsstöðvar um allan heim; í Bandaríkjunum, Bretlandi, Hollandi, Íslandi, Ísrael, Dubai, Singapore, og Hong Kong, svo dæmi séu tekin. Fyrirtækið er að mestu í eigu alþjóðlegra fjárfestingasjóða sem hafa aðsetur víða um heim.

Eigendur Rapyd á Íslandi hafa fjárfest ríkulega hér á landi. Frá aðkomu Rapyd að félaginu hefur félagið aldrei greitt arð til eigenda sinna. Félagið er því ekki með nokkru móti að styðja hernað Ísraelshers, eins og ranglega hefur komið fram í fullyrðingum ofangreinds hóps.

Átökin fyrir botni Miðjarðarhafs og mannfall almennra borgara eru hörmungar sem snerta okkur öll. Það á jafnt við um starfsmenn Rapyd sem aðra. Átökin og rót þeirra eru flókin, tilfinningaþrungin og um margt sorgleg. Að þeim ástæðum hefur Rapyd á Íslandi ekki talið rétt að blanda sér í umræðuna fyrr en nú. Ítrekaðar rangar fullyrðingar um Rapyd í fjölmiðlum hefur knúið mig til að svara.

Að gefnu tilefni vil ég árétta að félagið tengist átökunum ekki á nokkurn hátt. Ég get fullyrt að starfsmenn félagsins taka hörmungarnar nærri sér og eins og aðrir og óska þess að átökunum linni. Óska ég þess að fólk sem kennir sig við mannréttindi og talar fyrir mannúð kynni sér staðreyndir um rekstur Rapyd á Íslandi áður en röngum fullyrðingum er haldið fram í fjölmiðlum.

Höfundur er forstjóri Rapyd á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×