Gular viðvaranir voru í gildi í dag fram eftir degi. Veðrið hafi víða áhrif og hefur enn á samgöngur. Flugi var frestað í dag eða aflýst. Þær hafa flestar runnið úr gildi en seint annað kvöld taka nýjar viðvaranir gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og Suðausturlandi. Þær renna flestar úr gildi um klukkan fimm eða sex morguninn eftir.
Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 veðrið hafa gengið eftir í dag.
„Þetta er aldeilis ekki búið og þarf ekki morgundaginn til,“ sagði Sigurður og að það myndi lægja í kvöld og hlý lægð komi upp að landinu á morgun.
„Með mikið vatn og talsverðan hita, allt að átta gráðum,“ sagði Sigurður og að það þýddi aðeins eitt. Að snjóhrúgurnar sem eru um allt land bráðni.

„Vatnsveðrið verður þannig að það má reikna með því að það fari allt á flot ef að menn ekki hugsa í tíma og noti þann tíma sem er fram að þessari rigningu,“ sagði hann og það myndi byrja að rigna annað kvöld.
Hann sagði þessu þó alls ekki lokið þá því þegar hlýja lægðin er búin komi köld lægð með hvassviðri og myndarlegum dimmum éljum.
„Þetta er bara rétt að byrja. Janúar er vissulega að kveðja okkur en þorrinn er alltaf erfiður,“ sagði Sigurður.
Þetta er mjög í takt við það sem veðurfræðingur Veðurstofunnar sagði fyrr í dag í samtali við fréttastofu en hann spáði mikilli asahláku annað kvöld og nótt.

„Það hlýnar á morgun og þá verður síðdegis á milli núll og fimm stig,“ sagði Marcel de Vries veðurfræðingur og að það verði nokkuð mikil rigning seint annað kvöld og aðfaranótt föstudags þegar hitinn hækkar upp í allt að sjö stig víða um land.
„Með mikilli úrkomu má búast við asahláku og þess vegna er viðvörun á þeim stöðum þar sem verður mikil rigning.“
Hann segir að eftir asahláku taki við stormur á vestanverðu landinu. Á laugardag sé rólegt land en eitthvað um él og svo taki rólegri dagar við.