Innlent

Sprungur að stækka og líkur á nýjum gosopum

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Kristín Jónsdóttir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni.
Kristín Jónsdóttir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni. Vísir/Vilhelm

Þrátt fyrir að dregið hafi úr gosvirkni eru líkur á að ný gosop opnist innan Grindavíkur og sprungur eru að myndast í bænum. Deildarstjóri eldvirkni og jarðskjálfta segir mikla hættu til staðar á svæðinu þar í kring og óvissu um framhaldið.

„Við erum að sjá að það hefur dregið ansi mikið úr gosvirkni og sjáum greinilega að gossprungan sem opnaðist í hádeginu í gær alveg syðst, hún virðist alveg hætt að framleiða hraun, sem eru auðvitað góðar fréttir,“ segir Kristín Jónsdóttir á Veðurstofu Íslands og vísar þar til gossprungunnar sem opnaðist nær Grindavík. Hraun er hætt að streyma úr henni en þrjú hús urðu því að bráð og jaðar þess nær að því fjórða.

Að neðan má sjá myndefni úr þyrluflugi yfir Grindavík fyrir hádegi.

Farið var yfir nýjustu gögn og mælingar á fundi vísindamanna í morgun og Kristín segir þau sýna að enn séu hreyfingar á svæðinu.

„Það er hreyfing yfir Grindavík, sem í rauninni þýðir að þar geta sprungur enn verið að opnast og þar er í raun mikil hætta þó að við lítum bara á sprungur og sprunguopnun,“ segir Kristín.

Þrjú hús hafa orðið hrauninu að bráð við götuna Efrahóp en hraun er hætt að streyma úr sprungunni.Vísir

Með sprungum, áttu þá við mögulegar gossprungur? 

„Í rauninni erum við að segja að það geti opnast nýjar gossprungur en svo eru líka þessar gliðnunarsprungur sem við búumst við að séu núna að stækka.“

Mikil aflögun sé í Grindavík. „Bjögun á jarðskorpunni og mikil víkkun sem á sér stað yfir ganginum. Þarna er að myndast sigdalur og sprungur að opnast. Það tognar á jarðskorpunni og verður samþöppun í kringum þennan sigdal,“ segir Kristín og bætir við að sigdalurinn gangi í gegnum Grindavík.

Hraunflæði aukist hugsanlega aftur

Dregið hefur úr virkni í stærri sprungunni fjær Grindavík sem er orðin slitrótt og hraun streymir úr einstaka opum. Kristín segir töluverða óvissu um framhaldið.

„Og ekki útilokað að það sé töluvert kvikustreymi inn á þetta svæði þannig að hugsanlega eykst hraunflæðið aftur og við teljum þetta svæði vera mikið hættusvæði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×