Schumacher varð fyrir alvarlegum heilaskaða þegar hann lenti í skíðaslysi í frönsku ölpunum ölpunum undir lok árs 2013.
Þjóðverjinn hefur ekki sést opinberlega síðan þá og lítið er vitað um ástand hans. Þó hafa borist fleiri og fleiri fréttir af Schumacher undanfarna mánuði.
Fyrrverandi samherji hans hjá Benetton, Johnny Herbert, segist meðal annars hafa heyrt af því að Schumacher geti setið til borðs með fjölskyldu á kvöldmatartíma.
Fjölskylda Schumachers og fjöldi heilbrigðisstarfsfólks annast hann á hverjum degi á heimili þeirra við Genfarvatnið í Sviss.
Eiginkona Schumachers, Corrina, stjórnar því hverjir geta hitt hann og stendur vörð um einkalíf þeirra.
Schumacher, sem varð 56 ára í síðustu viku, varð sjö sinnum heimsmeistari í Formúlu 1; tvisvar sinnum með Benneton og fimm sinnum með Ferrari.