Nægar ástæður fyrir Willum að auglýsa stöðu Markúsar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. desember 2023 12:17 Markús Ingólfur ásamt lögmanni sínum Fróða Ásgeirssyni í dómsal á dögunum. vísir/Vilhelm Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mátti auglýsa stöðu forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í september síðastliðnum. Fráfarandi forstjóri stofnunarinnar stefndi íslenska ríkinu vegna ákvörðunar ráðherra og krafðist þess að hún yrði felld úr gildi. Þá vildi hann bætur frá ríkinu. Ríkið var sýknað í málinu og er niðurstaðan afdráttarlaus.
Aðalmeðferð í máli Markúsar Ingólfs Eiríkssonar, fráfarandi forstjóra, gegn íslenska ríkinu og Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun desember. Talsvert hefur gustað um stöðu Markúsar eftir að hann kom fram í fjölmiðlum í sumar og sakaði heilbrigðisráðherra um að fjársvelta stofnunina. Þá kvaðst hann persónulega hafa orðið fyrir óviðunandi framkomu af hálfu ráðherra. Staða Markúsar var auglýst í september síðastliðnum en fimm ára skipunartími hans rennur út í mars. Með auglýsingunni var ljóst að heilbrigðisráðherra hugðist ekki framlengja skipunartíma Markúsar sem forstjóra. Markús höfðaði dómsmálið vegna þess sem hann kallaði ranglæti og óeðlilegan þrýsting í tengslum við það sem hann leit á sem ólögmæta uppsögn. Síðan er Markús kominn í leyfi frá störfum vegna meints eineltis. Málefnaleg sjónarmið Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Willums um að auglýsa embættið laust til umsóknar hefði verið byggð á málefnalegum sjónarmiðum að undangenginni fullnægjandi rannsókn. Var þá fyrst og fremst vísað til gagna í málinu um skelfilega rekstrarafkomu stofnunarinnar og bréfaskipta Markúsar í framhaldi af þeim. Lagheimild ráðherra hafi verið skýr. Willum Þór mætir í dómsal við aðalmeðferðina í byrjun desember.Vísir/Vilhelm Héraðsdómur vísaði í niðurstöðukafla sínum til rekstrarhalla HSS árið 2022 upp á 600 milljónir króna auk 200 milljóna króna uppsafnaðs halla á fyrri árum. Árshlutauppgjör stofnunarinnar fyrir árið 2022 hafi ekki gefið til kynna mikinn halla fyrr en ráðuneytið fékk upplýsingar um það í desember að stofnunin hefði dreift útgjaldaheimildum yfir ellefu mánuði en ekki tólf. Ekki hafði verið gert ráð fyrir útgjöldum í desember. Héraðsdómur sagði að Markús hefði sem forstöðumaður þruft að hlíta fjárheimildum samkvæmt fjárlögum. Ef hann teldi þær ekki nægar bæri honum samkvæmt lögum að gera grein fyrir því og sækja um auknar fjárheimildir. Hann gæti ekki farið fram úr heimildum á grundvelli þess að hann persónulega teldi um vanfjármögnun að ræða og tekið ákvörðun um að auka þjónustu þannig að kostnaður færi fram úr fjárheimildum. Þá hafi honum borið að upplýsa ráðherra um að rekstraráætlun stæði ekki. Undir meðaltali Þá hafi verið fullt tilefni fyrir ráðherra að fela Ríkisendurskoðun að gera úttekt á starfsemi stofnunarinnar. Þessi fleiri hundruð milljóna króna frávik án þess að tilkynna um þau hafi verið málefnaleg ástæða fyrir ráðherra að auglýsa embætti forstjóra að nýju að loknum fimm ára skipunartíma. Þá horfði dómurinn til bréfaskipta Markúsar við heilbrigðisráðuneytið. Þar vísaði Markús til galla á löggjöf er varðaði rekstur heilbrigðisþjónustu. Ákvæði laga um opinber fjármál væru „í mótsögn við sjálf sig“. Rekstrarhalli HSS og afstaða Markúsar til laganna sem hafi komið fram í bréfum hans hafi gefið til kynna að honum væri sama um lögin sem hann hafi átt að fylgja. Willum ásamt Þorvaldi Haukssyni lögmanni ríkisins í málinu.Vísir/vilhelm Dómurinn byggði einnig á stjórnendamati Maskínu sem byggðist á sjálfsmati stjórnenda og mati samstarfsfólks á samskiptahæfni, heilindum, leiðtogahæfni og árangursmiðaðri stjórnun. Þar var Markús undir meðaltali í öllum þáttum miðað við forstöðumenn stofnana ríkisins. Þá lágu fyrir gögn frá 2019 þar sem fjórtán hjúkrunarstjórnendur lýstu yfir trúnaðarbresti gagnvart Markúsi. Auk þess gerði heilbrigðisráðuneytið athugasemdir við meðferð fjármuna ríkisns vegna ferðar framkvæmdastjórnar til Madrídar árið 2019 þar sem stofnunin greiddi flug og dagpeninga meðan á ferð stóð. Lítil viðvera Ráðuneytisstjóri sagðist fyrir dómi hafa lýst yfir áhyggjum af stöðu stofnunarinnar og viðveru Markúsar á skrifstofunni í Reykjanesbæ. Hann hefði stuttu fyrir aðalmeðferðina afboðað alla fundi og slitið sambandi við framkvæmdastjórn. Þannig hafi hann virst ætla að stjórna stofnuninni einn. Dómurinn taldi Willum ekki hafa farið offari gagnvart Markúsi á fundum þeirra. Fullt tilefni hafi verið fyrir ráðherra og starfsmenn ráðuneytisins til að ganga eftir svörum Markúsar vegna rekstrarhallans og bréfaskipta. Þá bæri ráðherra ekki skylda til að veita Markúsi áminningu áður en hann auglýsti embættið. Loks var því hafnaði að ákvörðun að auglýsa embættið væri með einhverjum hætti aðför að tjáningarfrelsi Markúsar. Ákvörðun Markúsar að tjá sig í fjölmiðlum og gagnrýna ráðherra hafi ekki gert Willum vanhæfan til að taka ákvörðun um auglýsinguna. Markús gæti ekki gert ráðherra vanhæfan með því að gagnrýna framkomu hans í fjölmiðlum. Var íslenska ríkið því sýknað af kröfu Markúsar. Dóminn má lesa hér.
Heilbrigðismál Reykjanesbær Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Stjórnsýsla Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Fleiri fréttir Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Sjá meira