Innlent

Á­bendingar Hörpu komu lög­reglunni á Tenerife að góðum notum

Árni Sæberg skrifar
Bæði íslensku flugfélögin, Play og Icelandair, fljúga til Aeropuerto Reina Sofia flugvallarins á suðurhluta Tenerife.
Bæði íslensku flugfélögin, Play og Icelandair, fljúga til Aeropuerto Reina Sofia flugvallarins á suðurhluta Tenerife. Getty/EyesWideOpen

Ábendingar Hörpu Rósar Júlíusdóttir, sem hefur um nokkurt skeið komið upplýsingum til lögreglunnar á Tenerife frá Íslendingum sem hafa lent í því að munum sé stolið úr töskum þeirra á flugvellinum, voru mikilvægar rannsókn sem endaði með handtöku fjórtán manna.

Á föstudaginn var greint frá því að spænska lögreglan hafi handtekið fjórtán manns og rannsakað aðra tuttugu fyrir að hafa stolið tæplega tveggja milljóna evra virði af farangri á Tenerife Sur-flugvellinum. Allir voru þeir starfsmenn flugvallarins.

Harpa Rós Júlíusdóttir hefur undanfarið reynt að koma upplýsingum til lögreglunnar á Tenerife frá Íslendingum sem hafa lent í klóm þjófanna.

Hún starfaði á flugvellinum á Tenerife í sjö ár en býr um þessar mundir á Íslandi. Hún ákvað í byrjun árs að setja sig í samband við gamlan vin í lögreglunni ytra til þess að reyna að stöðva öldu þjófnaðar úr töskum á flugvellinum.

Í samtali við Morgunblaðið, í tengslum við handtökurnar, greinir Harpa Rós frá því að ábendingarnar frá henni hafi veitt lögreglu mikilvægar upplýsingar um það sem var á seyði á flugvellinum. Hún kveðst þó ekki búa yfir frekari upplýsingum um málið en þær sem komið hafa fram í fjölmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×