Liverpool jafnaði í kvöld félagsmet þegar liðið skoraði í 34. leiknum í röð í öllum keppnum. Liðið skoraði eitt mark í 2-1 tapi gegn Royale Union SG frá Belgíu.
Öll mörk kvöldsins komu í fyrri hálfleik. Mohamed Amoura kom heimamönnum yfir,
Jarell Quansah jafnaði og Cameron Puertas skoraði það sem reyndist sigurmarkið á markamínútunni sjálfri eða 43. mínútu leiksins. Amoura með stoðsendinguna og segja má að gestirnir frá Bítlaborginni hafi átt fá svör við leik Amoura í kvöld.
Puertas var aftur á skotskónum í síðari hálfleik en það mark dæmt af vegna rangstöðu, lokatölur þó 2-1 heimaliðinu í vil.
Þar sem Liverpool var þegar búið að vinna E-riðil var stillt upp mikið breyttu liði í kvöld enda stórleikur gegn Manhester United um helgina.
Í hinum leik riðilsins vann Toulouse 2-1 sigur á LASK og lauk því leik í 2. sæti með 11 stig en Liverpool með 12 stig. Royale Union endaði með 8 stig og LASK rak lestina með 3 stig.