Garðabær verður aðeins þriðji bærinn í sögu íslenska körfuboltans sem fær bæjarslag í efstu deild á eftir Reykjavík og Reykjanesbæ.
Leikur Stjörnunnar og Álftaness hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Garðabær var mikill handboltabær á síðustu öld og fram á þessa en lítið fór fyrir körfuboltanum. Körfuboltinn hefur vaxið og dafnað í bænum síðustu tvo áratugi og nú er svo komið að bærinn á fleiri körfuboltalið í efstu deild heldur en Reykjavík.

Það hafa verið margar stórar stundir síðustu ár þar sem nýr kafli hefur margoft verið skrifaður. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir stóru dagana sem gerðu Garðabæ að þessum mikla körfuboltabæ.
Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftanesliðsins, hefur tekið þátt í mörgum af þessum stóru stundum í körfuboltasögu Garðabæjar, bæði sem leikmaður og þjálfari og bæði hjá Stjörnunni og úti á Álftanesi.
Dagarnir sem gerðu handboltabæinn Garðabæ að körfuboltabæ:
21. mars 2001
Stjarnan tryggir sig upp í úrvalsdeild karla í fyrsta sinn með 97-85 sigri á Þór í Þorlákshöfn í úrslitakeppni 1. deildarinnar. Eiríkur Sigurðsson skoraði 27 stig í leiknum en Jón Ólafur Jónsson var með 17 stig. Hinn 39 ára gamli Jón Kr. Gíslason var með 7 stig og 5 stoðsendingar í leiknum en þetta var ein af mörgum leiðum hans til að hjálpa við uppkomu körfuboltans í Garðabæ. Synir hans átti allir eftir að spila fyrir Stjörnuna og einn þeirra spilar með Álftanesi í dag.
12. október 2007
Stjarnan tapaði öllum 22 leikjunum á sínu fyrsta tímabili sínu í efstu deild 2001-02 og komst ekki aftur upp fyrr en vorið 2007. Fyrsti sigur félagsins í úrvalsdeild karla kom strax í fyrstu umferð á móti Skallagrími sem Stjörnuliðið vann 85-72. Dimitar Karadzovski var stigahæstur með 22 stig en Kjartan Atli Kjartansson, núverandi þjálfari Álftanessliðsins, var með fimm þrista og 17 stig í leiknum.

18. desember 2008
Teitur Örlygsson samþykkir að taka við þjálfun Stjörnunnar rétt fyrir jól. Hann horfði á fyrsta leikinn þar sem fyrrnefndur Jón Kr. Gíslason stýrði Stjörnuliðinu til sigurs. Stjarnan hafði tapað 8 af fyrstu 10 leikjum sínum undir stjórn Braga Magnússonar sem var látinn fara eftir þá erfiðu byrjun. Teitur átti eftir að þjálfa Stjörnuna til ársins 2014 og á meðan voru skrifaðir margir nýir kaflar í sögu félagsins.

15. febrúar 2009
Teitur Örlygsson var búinn að vinna sinn fyrsta titil með Stjörnunni réttum rúmum tveimur mánuðum eftir að hann tók við. Þetta var líka fyrsti titill Stjörnunnar í körfubolta. Stjarnan kom þarna öllum á óvart og vann stórstjörnulið KR 78-76 í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöllinni. Jón Arnór Stefánsson og Jakob Sigurðarson höfðu komið heim í KR og liðið var þarna á toppi deildarinnar. Stjörnumenn gerðu hið ómögulega þar sem Jovan Zdravevski var með 23 stig, 11 fráköst og 5 stoðsendingar og Justin Shouse bætti við 22 stigum, 8 fráköstum og 9 stoðsendingum. Kjartan Atli var með þrjá þrista og 11 stig í leiknum og Fannar Freyr Helgason tók 19 fráköst á móti aðeins 2 hjá nafna sínum Ólafssyni í KR-liðinu.
16. mars 2009
Stjörnumenn komust í úrslitakeppnina í fyrsta sinn og mættu Snæfelli í átta liða úrslitum. Stjarnan vann heimaleikinn 99-79 sem var jafnframt fyrsti heimaleikur félagsins í sögu úrslitakeppninnar. Snæfell vann hins vegar báða leikina í Stykkishólmi og komst áfram. Justin Shouse var með 28 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar í fyrsta sigrinum og Jovan Zdravevski skoraði 25 stig.
23. mars 2011
Stjarnan vann sitt fyrsta einvígi í úrslitakeppni eftir 69-66 sigur í oddaleik í Grindavík. Kjartan Atli Kjartansson skoraði risastóra þriggja stiga körfu á lokamínútum leiksins sem kom Stjörnunni endanlega yfir. Justin Shouse var atkvæðamestur með 21 stig og 8 stoðsendingar, Renato Lindmets skoraði 18 stig og Kjartan Atli var með 11 stig.

31. mars 2011
Aðeins átta dögum eftir sigurinn í fyrsta einvíginu tryggðu Stjörnumenn sér sæti í lokaúrslitum í fyrsta sinn með 105-88 sigur á Snæfelli í Hólminum. Stjarnan vann alla þrjá leikina í einvíginu. Jovan Zdravevski var með 25 stig í lokaleiknum og Renato Lindmets skoraði 22 stig.
14. apríl 2011
Stjarnan hélt áfram að skrifa söguna þótt að Íslandsmeistaratitilinn hafi ekki komið í hús. Stjarnan vann sinn fyrsta heimaleik í lokaúrslitunum sem var leikur tvö í einvíginu á móti KR sem Stjarnan vann 107-105. KR vann alla hina þrjá leikina og vann titilinn. Stjörnumönnum hafði hins vegar tekist að vinna sinn fyrsta heimaleik í átta liða úrslitum (2009), undanúrslitum (2011) og lokaúrslitum (2011).

25. apríl 2013
Dagur sem Stjörnumenn ætluðu að verða Íslandsmeistarar eftir að hafa komist 2-1 yfir í úrslitaeinvíginu á móti Grindavík og fengið fjórða leikinn á heimavelli. Grindvíkingar eyðilögðu partýið, unnu 88-82, og tryggðu sér svo Íslandsmeistaratitilinn með sigri í oddaleik í Grindavík. Stjörnumenn komu stjarfir inn í leikinn í spennuþrungnu umhverfi í Garðabænum og töpuðu fyrri hálfleiknum með fjórtán stigum. Þeir hafa aldrei komist nær Íslandsmeistaratitlinum síðan.
14. mars 2019
Stjörnumenn urðu deildarmeistarar tvö tímabil í röð og höfðu því heimavallarréttinn út úrslitakeppnina. Liðinu tókst þó ekki að nýta sér fyrra árið þegar Garðbæingar duttu út í oddaleik á heimavelli í undanúrslitum 2019 og árið eftir fór engin úrslitakeppni fram vegna kórónuveirufaraldursins. 14. mars 2019 var fyrri deildarmeistaratitilinn í höfn og sá fyrsti af þeirri gerð sem endar í Garðabænum.

16. apríl 2019
Álftnesingar tryggðu sér sæti í 1. deild karla eftir 123-110 sigur á ÍA. Kjartan Atli, núverandi þjálfari liðsins, skoraði 25 stig og 5 þrista í leiknum en stigahæstur var Þorgeir Kristinn Blöndal með 26 stig. Álftnesingar höfðu þar með farið upp um tvær deildir á tveimur árum eftir að hafa verið í 3. deildinni veturinn 2017-18.
19. mars 2022
Stjarnan varð bikarmeistari í sjötta sinn á þrettán árum með 93-85 sigri á Þór í Smáranum. Stjörnumenn höfðu unnið bikarinn ofar en öll önnur lið á nýrri öld. Robert Turner III skoraði 31 stig í bikarúrslitaleiknum og David Gabrovsek var með 29 stig af bekknum.

13. mars 2023
Álftanes tryggir sér sæti í úrvalsdeildinni í fyrsta sinn með þrettán stiga sigri á Skallagrími, 96-83, í Forsetahöllinni. Srdan Stojanovic skoraði 28 stig í leiknum og Dúi Þór Jónsson var með 20 stig og 11 stoðsendingar. Þjálfarinn Kjartan Atli hafði þar með farið upp með báðum félögunum í Garðabænum.
12. október 2023
Álftanes spilar sinn fyrsta leik í efstu deild 8. október en tapaði þar 65-70 á móti Íslandsmeisturum Tindastóls. Fyrsti sigurinn kom í höfn fjórum dögum síðar þegar Álftanes vann 86-79 sigur á Grindavík í Forsetahöllinni.

1. desember 2023
Stjarnan og Álftanes mætast í fyrsta skiptið í efstu deild karla í körfubolta. Stjarnan tekur á móti nágrönnum sínum í Umhyggjuhöllinni en bæði lið hafa unnið fimm leiki og tapað þremur í fyrstu átta umferðunum og gætu því varla verið jafnari.
