Nánast ómögulegt að vera ósýnilegur Storytel 20. nóvember 2023 10:55 Höllin á hæðinni er eftir Sigrúnu Elíasdóttur en hún hefur áður skrifað kennslu- og barnabækur auk þess að halda úti hlaðvarpinu Myrka Ísland. Í dag kemur út hjá Storytel bráðfyndin ljúflestrarsaga eftir Sigrúnu Elíasdóttur sem ber heitið Höllin á hæðinn í lestri Sólveigar Guðmundsdóttur.
Bókin segir frá konu sem heitir Saga en hún flytur úr borginni til Eyrarvíkur á Vestfjörðum þegar besta vinkona hennar erfir hús eftir afa sinn sem nefnist Berntsenhöllin. Hún lítur á það sem einstakt tækifæri til að prófa eitthvað alveg nýtt og öðlast smá tilbreytingu frá einhæfu Reykjavíkurlífinu. Saga ætlar aðeins að dvelja tímabundið í bænum á meðan hún gerir húsið upp en hugmyndin er að stofna þar gistiheimili. Fljótt sogast hún inn í samfélagið og aflar sér bæði vina og óvina. Hvernig reiðir borgarbúanum Sögu af í litlu samfélagi þar sem allir eru með nefið í málum hvers annars? Hvernig taka íbúar Eyrarvíkur nýbúanum? Mun ástin einhvern tímann banka upp á hjá Sögu? Sigrún Elíasdóttir hefur áður skrifað kennslu- og barnabækur auk þess að halda úti hlaðvarpinu Myrka Ísland. Það má því segja að hún sé á nýjum slóðum í nýjustu bók sinni. „Það er bara svo leiðinlegt að gera alltaf það sama. Þannig að þegar þau hjá Storytel nefndu að það vantaði virkilega svona efni á íslenska markaðinn, ákvað ég bara að prófa í samvinnu við þau,“ segir Sigrún. „Ég þekki í rauninni ekki mikið til þess konar bókmennta og er því enn þakklátari fyrir tækifærið. Ritstjórinn minn, Katrín Lilja, er miklu betur að sér í þessum efnum og hefur ítrekað bjargað hlustendum frá því að sagan yrði bara myrkur og kaldhæðni. Hún hefur fengið mig til að halda mig við léttari hliðar mannlífsins í þessari bók, sem er ekki lítið afrek út af fyrir sig.“ Hún viðurkennir að aðalpersóna sögunnar, Saga, sé stundum ekkert ólík sjálfri sér, svona almennt reið og bitur og heldur að það sé best að gera allt upp á eigin spýtur. „En annars eru þær flestar tómur uppspuni. Ég flutti einu sinni sjálf í þorp á Vestfjörðum, nánast án nokkurs fyrirvara og bjó þar í tvö ár. Þrátt fyrir að vera sjálf úr sveit og hafi verið vönu litlu samfélagi í Borgarfirði þá var þetta samt mjög sérstakt og öðruvísi. Ég hef því upplifað alveg ekta vestfirska vetur.“ Nándin í 300 manna þorpi er mikil og flestir eru með marga ólíka hatta í samfélaginu að hennar sögn. „Stundum er erfitt að sigla á milli skers og báru og nánast ómögulegt að vera ósýnilegur. En umbunin er líka heilmikil ef maður er opinn fyrir henni. Ég tek samt fram að ekkert af söguþræðinum, persónur eða staðhættir eru beint byggðar á raunveruleikanum. Frekar bara upplifunin. Þorpið heitir Eyrarvík sem er bara tilbúinn staður, settur saman úr þeim algengu endingum þorpanna þarna; -eyri og -vík.“ Sólveig Guðmundsdóttir les söguna. Höllin á hæðinni er fyrsta bókin í þríleik og því koma tvær Eyrarvíkur seríunni. „Þar fyrir utan er ég að vinna að sögu um miðaldra konu á nútíma deitmarkaðinum, sem er spaugilegt efni út af fyrir sig. Það er efni sem virðist vera að vinda upp á sig og ætlar að verða einhver óskapnaður sem ég hef enn ekki ákveðið hvað ég á að gera við. Svo finnst mér líka gaman að kafa í myrkur Íslandssögunnar öðru hverju, svona til að halda í hamfaratrúna í sjálfri mér, þannig að ég á sennilega eftir að gera fleiri Myrka Íslands þætti á nýju ári.“
Bókmenntir Bókaútgáfa Mest lesið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Vinsælustu sýningu leikhússins frestað vegna óvæntra meiðsla Lífið Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Lífið Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag Lífið Apinn að vaxa upp úr apabangsanum Lífið Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Tónlist „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Lífið Fleiri fréttir Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira