Starfsfólk N1 styrkir neyðarsöfnun UNICEF á Gaza um 5 milljónir N1 9. nóvember 2023 14:00 Meira en þrjú þúsund börn hafa verið drepin í árásum Ísraela á Gasaströndina. Getty/Ahmad Hasaballah Forstöðumaður hjá N1 hvetur fyrirtæki til að styðja við þau góðgerðarsamtök sem stunda óeigingjarnt starf í eldlínunni á átakasvæðum.
Orkufélagið N1 mun láta fimm milljónir króna renna til neyðarsöfnunar UNICEF á Íslandi vegna átakanna á Gaza, en starfsfólk félagsins velur árlega mikilvægt málefni fyrir jólin til að styrkja. Forstöðumaður markaðssviðs N1 vonar að styrkurinn verði öðrum fyrirtækjum á Íslandi hvatning til að slást í hópinn. Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi hrósar N1 fyrir að fara fram með góðu fordæmi enda sé ljóst að neyð um milljón barna á Gaza sé mikil. Silja Mist Sigurkarlsdóttir, forstöðumaður markaðssviðs N1 segir hörmungarnar á Gaza ekki hafa látið starfsfólk N1 ósnortið. Það er þyngra en tárum taki að fylgjast með neyð allra þessara barna sem hafa ekkert sér til saka unnið og því vildum við leggja okkar af mörkum. Við vitum að UNICEF mun miðla styrknum þangað sem hann nýtist best og við hvetjum fleiri fyrirtæki til að styðja við þau góðgerðarsamtök sem stunda óeigingjarnt starf í eldlínunni á átakasvæðum." UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur unnið við afar erfiðar og hættulegar aðstæður við að tryggja börnum og íbúum Gaza nauðsynlega mannúðaraðstoð í yfirstandandi átökum. Bæði hefur verið unnið að því að dreifa þeim hjálpargögnum sem voru til staðar sem og að útvega og dreifa hjálpargögnum og nauðsynjum síðan átök hófust. Tugir vörubíla á vegum UNICEF hafa flutt vatn, neyðarbirgðir, sjúkragögn, lyf, skýli fyrir fólk á flótta og aðrar nauðsynjar yfir Rafah-landamærin frá 21. október. UNICEF hefur margítrekað kröfu sína um tafarlaust vopnahlé og að vernd allra barna sé tryggð sem og óhindraður og öruggur aðgangur mannúðarstofnana að íbúum Gaza, en um helmingur þeirra eru börn. Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi vonar að fleiri fyrirtæki bregðist við. „Það er svo margt sem fyrirtæki geta gert til að láta gott af sér leiða og þarna stígur N1 fram með veglegan styrk þangað sem neyðin er mest. Við erum þakklát og stolt að taka við styrknum og vitum að hann mun nýtast til lífsbjargandi verkefna á Gaza. Vonandi verður framtakið einnig til þess að fleiri fyrirtæki líti sér nær og gefi slíka styrki til góðra málefna – þörfin er svo sannarlega til staðar á þessum síðustu vikum fram að jólum.“ Hafi önnur fyrirtæki eða einstaklingar áhuga á að fylgja fordæmi N1 og styðja við gott málefni bendir UNICEF á Íslandi á neyðarsöfnun sína vegna átakanna á Gaza: Söfnunarreikningur fyrir börn á Gaza: 701-26-102015 Kennitala 481203-2950 Einnig bendum við á Almenna neyðarsjóðinn þar sem hægt er að styrkja starfsemi UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, vegna neyðar barna víða um heim. Söfnunarreikningur fyrir Almenna neyðarsjóðinn: 0701-26-102020 Kennitala: 481203-2950 Til að fá nánari upplýsingar um frekari styrktarleiðir og einstakar neyðarsafnanir bendum við á heimasíðuna okkar, unicef.is eða að hafa samband í unicef@unicef.is
Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Atvinnulíf Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Sjá meira