Lífið

Barn Bar­ker og Kar­dashian komið í heiminn

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Parið er búið að vera saman síðan í byrjun árs 2021.
Parið er búið að vera saman síðan í byrjun árs 2021. Getty/Bottari

Fyrsta barn trommarans Travis Barker og raunveruleikastjörnunnar Kourtney Kardashian er komið í heiminn. Kardashian tilkynnti um óléttuna í júlí þegar hún hélt á skilti á tónleikum Travis, sem er trommarinn í hljómsveitinni Blink-182, sem á stóð: „Travis, ég er ólétt.“

People greinir frá barnsburðinum en hjónin giftu sig í júní á síðasta ári og hafa verið par síðan í byrjun árs 2021. Þau eiga fyrir nokkur börn úr fyrri samböndum. Kourtney þrjú börn með raunveruleikastjörnunni Scott Dissick. Barker á einnig þrjú börn fyrir með fyrirsætunni Shanna Moakler. Eins og fyrr segir er þetta fyrsta barn þeirra saman.

Trommuleikarinn Travis Barker, eiginmaður raunveruleikastjörnunnar Kourtney Kardashian, leysti frá skjóðunni hvað sonur þeirra ætti að heita í hlaðvarpsþætti á dögunum. Sonurinn mun koma til með að heita Rocky Thirteen Barker.  

Hann sagði Rocky-nafnið til komið vegna þess hve mikið hann liti upp til gítarleikarans Rocky George, sem lék með hljómsveitinni Suicidal Tendencies. „Og svo er þrettán bara besta tala allra tíma,“ sagði Barker í þættinum.


Tengdar fréttir

Kourt­n­ey Kar­dashian frum­sýnir ljósa lokka

Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian er orðin ljóshærð. Hún sýndi nýja hárið á Instagram síðu sinni og vakti það mikla athygli. Ólíkt systrum sínum hefur Kourtney haldið sig við dökka hárið alveg síðan hún steig fyrst fram í sviðsljósið, þar til nú.

Kourtney Kardashian og Travis Barker giftu sig í alvörunni

Eftir að hafa tekið æfingarbrúðkaup í síðasta mánuði eru Kourtney Kardashian og Travis Barker, einnig þekkt undir paranafninus Kravis, búin að ganga í það heilaga. Í þetta skiptið er það í alvörunni, lagalega séð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.