Lífið

Myndaveisla: „Við erum ennþá nákvæmlega sömu gaurarnir“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Rapparadúettinn Úlfur Úlfur blésu til útgáfuteitis í tilefni af plötunni Hamfarapopp á dögunum.
Rapparadúettinn Úlfur Úlfur blésu til útgáfuteitis í tilefni af plötunni Hamfarapopp á dögunum. Eygló Gísladóttir

Rappdúettinn Úlfur Úlfur, sem samanstendur af Arnari Frey Frostasyni og Helga Sæmundi Guðmundssyni, gaf út plötuna Hamfarapopp á dögunum sem er þeirra fyrsta breiðskífa frá árinu 2017. Fyrir hafa þeir gefið út þrjár plötur. 

Á þeim tíma hafa Úlfarnir báðir gift sig og eignast börn. 

Hafa einhverjar breytingar orðið á lögunum ykkar með tilkomu nýrra hlutverka í lífinu?

„Já og nei. Við erum ennþá nákvæmlega sömu gaurarnir og það er ekki endilega margt á Hamfarapopp sem mun koma fólki á óvart. En við erum orðnir mýkri, það er bara þannig,“ segir Arnar og bætir við:

„Þessi plata er hlýrri en hinar, meira af ást og poppi og aðeins minni drungi en áður.”

Arnar og Helgi segja efnistök laganna vera svipaða og á fyrri plötum þar sem rauði þráðurinn í gegnum plöturnar er að  segja sögur af hversdagsleikanum og samtímanum.

„Titillinn vísar í nákvæmlega það sem hann er. Popptónlist á tímum hamfara. Við höfum alltaf gert lög sem fjalla um leit að tilgangi í heimi sem skíðlogar og verið mjög heitt í hamsi. Eins og í Brennum allt. Við leggjum ekki til að brenna alveg allt á Hamfarapopp,” segir Helgi.

Ellefu óhappatala Helga

Nýútgefin plata samanstendur af tólf lögum sem var unnin í samstarfi við Þormóð Eiríksson, pródúsent. 

„Eftir að hafa legið tveir yfir þessum lögum var gott að fá fersk eyru frá þeim besta í bransanum. Hann fékk blessun okkar til að nánast eiga við lögin að vild og að lokum bættum við einu lagi við plötuna sem hann á alveg. Mér fannst ellefu lög heldur ekki meika sens, það er óhappatalan mín,” segir Helgi.

Úlfarnir buðu í partý

Margt var um mannin í útgáfuteiti Úlfana sem fór fram á Pósthús Mathöll. Líkt og myndirnar gefa til kynna var mikil gleði í sannkallaðri tónlistarveislu.

Vigdís Hlíf Jóhönnudóttir og Birna Sif Kristínardóttir.Eygló Gísladóttir
Karítas Óðinsdóttir, Ragga Hólm, Steinunn Jóns og Salka Sól.Eygló Gísladóttir
Friðfinnur Oculus, Snjólaug Anna Sindradóttir og Sindri Már Sigfússon.Eygló Gísladóttir
Hjónin Arnar Freyr og Salka Sól voru í góðum gír umkringd vinum. Eygló Gísladóttir
Það var góð stemmning í hófinu.Eygló Gísladóttir
Arnar Freyr, Karítas Óðins, Ragga Hólm, Steinunn og Helgi Sæmundur.Eygló Gísladóttir
Systurnar Kamilla Einars og Júlía Margrét Einars ásamt Ninju Sif Jónínudóttur.Eygló Gísladóttir
Skvísur í stuði.Eygló Gísladóttir
Úlfur úlfur tók að sjálfsögðu lagið.Eygló Gísladóttir
Margt var um manninn.Eygló Gísladóttir
Allar kynslóðir virtust njóta sín vel í útháfuhófinu. Eygló Gísladóttir
Baldvin Ólafsson, Óli Valur og Birgir Freyr.Eygló Gísladóttir
Ellen Ýr Jónsdóttir og Júlían J.K. Jóhannsson, kraftlyftingarparið flotta.Eygló Gísladóttir
Ingólfur Bragi Gunnarsson og Stefán Þór Hjartarson skáluðu fyrir Úlfi Úlfi. Eygló Gísladóttir
Ragga Hólm og Þuríður Blær úr Reykjavíkurdætrum.Eygló Gísladóttir
Birna Sif Kristínardóttir og Sjöfn Kristjánsdóttir létu sig ekki vanta.Eygló Gísladóttir
Rappunnendur sameinuðust og fögnuðu nýju efni strákanna.Eygló Gísladóttir
Félagarnir af Sauðárkróki.Eygló Gísladóttir
Arnar Freyr, Salka og Helgi.Eygló Gísladóttir
Þuríður Blær og Steinunn voru í banastuði.Eygló Gísladóttir
Gleðin var við völd.Eygló Gísladóttir
Já, upp á borð!Eygló Gísladóttir
Eygló Gísladóttir
Elma Lísa, Reynir Lyngdal og Magnús Leifs.Eygló Gísladóttir
Magnús Leifsson var meðal gesta.Eygló Gísladóttir
Salka og ljósmyndarinn Eygló Gísla.Eygló Gísladóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.