Yfirgangur Landsvirkjunar gegn íbúum við Þjórsá og gagnvart lífríki og umhverfi árinnar Kjartan H. Ágústsson skrifar 18. október 2023 07:00 Ég er einn þeirra íbúa Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem kominn er með nóg af yfirgangi og virðingarleysi ákveðinna afla, gagnvart náttúrunni, lýðræðinu og faglegum vinnubrögðum. Þar ber hæst Landsvirkjun sem haldið hefur íbúum í gíslingu með yfirvofandi virkjunum í neðri hluta Þjórsár, árum saman. Við sem efumst um ágæti þessara virkjana höfum kallað eins og hrópandi í eyðimörk. Leikurinn er ójafn, ef leik skal kalla. Landsvirkjun hefur heilu verkfræðistofurnar á launum og hóp lögfræðinga og ýmiss konar sérfræðinga. Við borgum. Við vinnum okkar baráttu kauplaust og í stopulum frítímum. Hvorki hefur verið hlustað á okkur né málsmetandi sérfræðinga t.d. vegna laxastofnsins í Þjórsá. Hjá Landsvirkjun er bara hlustað á það sem hentar. Gallinn er bara sá að það hentar hvorki okkur né náttúru og lífríki. Gleymum ekki að Hvammsvirkjun og aðrar virkjanir í neðri hluta Þjórsár yrðu í byggð, m.a. s. blómlegri byggð. Virkjunin, eins og aðrar virkjanir á svæðinu, eru á virku gosbelti og því umtalsvert meiri líkur á jarðskjálftum, eldgosum og flóðum á þessu svæði en á flestum öðrum virkjanasvæðum. Stór hluti orkuframleiðslu landsmanna er því á virku flóða- og jarðskjálftasvæði. Fleiri virkjanir á þessu hættusvæði ættu ekki að vera inni í myndinni og allra síst í byggð. Það yrðu mistök fyrir náttúru, umhverfi, lífríki og mannlíf samfélagsins. Söngur um meiri virkjanir og meiri orku er hávær nú um stundir. Umhverfis-, orku og auðlindaráðherra kallar eftir meiri grænni orku. Það verður að virkja. Liðka þarf til í reglugerða- og lagaskógi svo hægt sé að koma Hvammsvirkjun í gegn. Ég velti fyrir mér hvort orkumálaráðherra sem er líka umhverfisráðherra láti náttúruna víkja fyrir meintum hagvexti. Verði Hvammsvirkjun að veruleika er lífríki Þjórsár stefnt í voða. Þá er einstöku umhverfi og mörgum náttúruperlum fórnað. Það er ekki í þágu náttúru og umhverfis að ætla að gera risavaxna tilraun með seiðafleytur sem er forsenda þess að Hvammsvirkjun var með séraðgerð komið inn í Rammaáætlun 2015.Er sá gjörningur þeim fagaðilum sem að komu til skammar þar sem endurheimt náttúru er virt að vettugi. Margir sérfræðingar hérlendis sem erlendis hafa bent á að slíkar seiðafleytur hafi hvergi virkað sem skyldi jafnvel ekki þar sem aðstæður eru mun hagstæðari en nú liggja fyrir í hönnun Hvammsvirkjunar. Líklegt er að vegna lítils vatnsmagns neðan stíflu verði afföll seiða mun meiri en þar sem gerð hefur verið tilraun með slíka nálgun. Er orkuþörfin raunverulega eins mikil og orkufyrirtæki og hagsmunaaðilar vilja vera láta? Nauðsynlegt er að öll spilin séu lögð á borðið og unnið af heiðarleikameð heildarsýn að leiðarljósi. Landvernd og fjölmargir fagaðilar hafa bent á veikleika þessarar framsetningar og telja margir orkuþörfina mun minni. Þar er m.a. bent á forgangsröðun, tap orku í ófullkomnu flutingskerfi. Höfum við efni á að vera með meiri orku í myntgröft miðað við höfðatölu en nokkur önnur þjóð? Verður orkufrekur iðnaður hér til frambúðar? Ef ekki, erum við þá tilbúin að hafa fórnað náttúru landsins? Hvað er til ráða? Margt kemur til greina. Draga þarf úr orkuþörf með betri nýtingu og minni sóun, skoða fleiri möguleika og fleiri kosti rafmagnsöflunar. Jarðvarmadælur eru nefndar, meiri endurvinnsla t.d. á áli og margt fleira hefur verið nefnt, hver er þróun annarra orkuverkefna, svo sem sjávarfallaorku og orku frá efnaferlum? Það er ljóst að líta þarf til fjölmargra þátta sem skipta máli í þróun til framtíðar. Það er óviðunandi að Landsvirkjun beiti allt og alla þrýstingi, haldi upplýsingum frá almenningi og berji Hvammsvirkjun í gegn án virks samráðs og samtals. Þar á bæ eru ekki nein meðul spöruð. Tveggja manna tal, stöðugir fundir, loforð og peningar og jarðeigendum stillt upp við vegg. Það væri efni í aðra grein. Í klappliðinu er umhverfisráðherra og meirihluti hreppsnefndar. Samtal við íbúa hefur verið af skornum skammti og á fundum hefur verið lögð áhersla á jámenn. Fram kemur í skýrslum að samstarf og samtal Landsvirkjunar við íbúa fékk falleinkunn í alþjóðlegu gæðamatskerfi vatnsorkuiðnaðarins. Þetta veit Lv. og hefur ekkert gert til að bæta úr því. Einhliða kynning og samtöl við valda aðila bætir þar ekki úr. Stjórnvöld hafa brugðist með að forgangsraða í hvað væntanleg orka á að fara. Það er ekki nóg að tala um að það verði að virkja meira þegar enginn veit hver orkuþörfin er né heldur í hvað orkan eigi að fara. Það þarf að vera tryggt að hún fari í orkuskipti en hvorki stóriðju né myntgröft svo dæmi séu nefnd. Það er fullkomlega óeðlilegt að Landsvirkjun ákveði orkuþörf og forgangsröðun í hvað orkan eigi að fara. Hér þurfa stjórnvöld að vinna sína vinnu. Við höfum verið að misnota náttúru og umhverfi um all langt skeið. Orkuskipti eru göfugt markmið en við megum ekki einblína á virkjanir í því skyni. Við þurfum öll að slaka á. Spyrjum okkur hvort við getum komist af með minna, t.d. færri utanlandsferðir, færri bíla og að minnka almenna neyslu. Róum okkur aðeins, minnkum neysluna og nýtum betur en hættum að ganga á rétt náttúru og komandi kynslóða. Hvammsvirkjun myndi aldrei uppfylla meinta ýtrustu orkuþörf. Þó svo allt landið yrði virkjað myndum við aldrei uppfylla orkuþörf heimsbyggðarinnar svo langt því frá. Við eigum ekki að sætta okkur við að setja þann klafa á Ísland og höfða þannig til samvisku landans. Er ekki kominn tími til að stjórnvöld setji sér skýra framtíðarsýn um það í hvað við viljum fórna náttúruauðlindum okkar? Virkjum mannvit og heilbrigða skynsemi. Hættum að hegða okkur eins og við eigum margar ónotaðar jarðir til vara. Höfundur er bóndi og kennari í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landsvirkjun Landbúnaður Skeiða- og Gnúpverjahreppur Deilur um Hvammsvirkjun Umhverfismál Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Sjá meira