Kipptu fingrinum í lið í miðjum leik Smári Jökull Jónsson skrifar 15. október 2023 23:30 Everage Richardsson í leik með Blikum á síðustu leiktíð. Vísir/Bára Everage Richardsson var besti maður Breiðabliks sem tapaði fyrir Hetti í Subway-deildinni á fimmtudag. Everage hélt áfram að spila þrátt fyrir að hafa farið úr lið á fingri.
Höttur vann sinn annan leik í Subway-deildinni á tímabilinu þegar liðið lagði Breiðablik á heimavelli sínum á fimmtudagskvöldið. Hinn síungi Everage Richardsson var besti maður Blika í leiknum en hann skoraði 22 stig og tók 11 fráköst í 80-73 sigri Hattarmanna. Richardsson varð fyrir því óláni í leiknum að fara úr lið á fingri. Einhverjir hefðu eflaust kastað inn hvíta handklæðinu í kjölfarið en Richardsson var ekki á þeim buxunum. Hann fékk einfaldlega aðstoð frá sjúkraþjálfara Hattar við að kippa fingrinum aftur í lið og hélt síðan leik áfram. Töluverðan tíma tók að koma fingrinum aftur í lið og kom Viðar Hafsteinsson, þjálfari Hattar, meðal annars til aðstoðar. „Algjört vesen að koma honum í liðinn,“ sagði Helgi Már Magnússon sérfræðingur í Subway Körfuboltakvöldi en atvikið var rætt í síðasta þætti. „Það er ekki eins og þetta hafi tekist í fyrstu tilraun, hvað er þetta tólfta tilraunin. Engin svipbrigði á honum,“ bætti Ómar Örn Sævarsson við. Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Subway Körfuboltakvöld - Fingri Richardsson kippt í lið
Subway-deild karla Breiðablik Mest lesið Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport HM-leikmaður í glannakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Sjá meira