Lífið

„Ég er hætt í þessu, ég þarf ekkert á þessum fokking LXS TV show að halda“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnea fékk algjörlega nóg í síðasta þætti.
Magnea fékk algjörlega nóg í síðasta þætti.

Í síðasta þætti af LXS var fylgst með ferð hópsins til Kanaríeyja en þar nutu þær sannarlega lífsins.

Þær Birgitta Líf, Magnea Björg, Sunneva Einars, Ína María og Kristín Pétursdóttir voru mættar út til Spánar og gekk sannarlega á ýmsu í þættinum.

Eins og sást í þar síðasta þætti var Magnea Björg komin með nóg af því að verið væri að grípa fram í fyrir henni.

Hún hélt áfram að tjá sig um það á Kanarí nema að þessu sinni brotnaði hún algjörlega niður og vildi einfaldlega hætta að taka þátt í raunveruleikaþættinum.

Hún bað um að slökkt yrði á myndavélunum og sagði við framleiðanda þáttanna: „Ég er hætt í þessu, ég þarf ekkert á þessum fokking LXS TV show að halda.“

Hér að neðan má sjá brot úr þætti gærkvöldsins en hægt er að sjá alla þættina í heild sinni á Stöð 2+.

Klippa: Ég er hætt í þessu, ég þarf ekkert að á þessu fokking LXS tv show að halda





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.