Fótbolti

Börsungar töpuðu stigum á Mallorca

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Mallorca og Barcelona skiptu stigunum á milli sín í kvöld.
Mallorca og Barcelona skiptu stigunum á milli sín í kvöld. Cristian Trujillo/Quality Sport Images/Getty Images

Barcelona þurfti að sætta sig við 2-2 jafntefli er liðið heimsótti Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Það var Vedat Muriqi sem kom heimamönnum í Mallorca í forystu strax á áttundu mínútu áður en Raphinha jafnaði metin fyrir Börsunga um það bil fimm mínútum fyrir hálfleikshléið.

Muriqi var þó aftur á ferðinni  í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar hann lagði upp fyrir Abdon Prats sem sá til þess að heimamenn fóru með forystuna inn í hálfleikshléið.

Börsungar jöfnuðu þó metin á ný þegar varamaðurinn Fermin Lopez kom boltanum í netið á 75. mínútu og þar við sat.

Niðurstaðan því 2-2 jafntefli og Mallorca náði í gott stig gegn Barcelona. Mallorca situr nú í 15. sæti spænsku deildarinnar með sex stig eftir sjö leiki, en Barcelona trónir enn á toppnum með 17 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×