Lífið

„Hamingjusöm og hlakka til lífsins með þér“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Logi Geirs og Inga Tinna eru án eitt glæsilegasta par landsins.
Logi Geirs og Inga Tinna eru án eitt glæsilegasta par landsins. Inga Tinna.

Inga Tinna Sigurðardóttir stofnandi og framkvæmdarstjóri Dineout birti fyrstu paramyndirnar af sér og kærastanum, Loga Geirssyni fyrrverandi landsliðsmanni í handbolta og einkaþjálfara.

Af myndunum að dæma virðist lífið leika við parið þar sem ferðalög erlendis og stórtónleikar Coldplay koma við sögu.

„Hamingjusöm og hlakka til lífsins með þér,“ skrifar Inga Tinna við myndafærsluna og setur lagið A Sky Full Of Stars með hljómsveitinni Coldplay undir. 

Parið á tónleikum Coldplay.Inga Tinna.
Parið á góðri stundu erlendis.Inga Tinna.

Inga Tinna og Logi eiga það sameiginlegt að hafa bæði ratað inn á lista Vísis í vor yfir glæsilegt fólk á lausu. 

Parið byrjaði opinberlega saman í sumar eftir að hafa verið að stinga saman nefjum í nokkurn tíma.  Má því velta vöngum yfir því hvort umræddir paralistar hafi verið kveikjan að sambandi þeirra.


Tengdar fréttir

Laglegar á lausu

Íslenskar konur eru oft sagðar þær fallegustu í heimi. Við hjá Lífinu á Vísi erum sammála þeirri kenningu. Í samráði við vel valda álitsgjafa settum við saman lista af einhleypum og glæsilegum konum.

Föngulegir folar á lausu

Íslenskir karlmenn eru misjafnir eins og þeir eru margir. Í samráði við vel valda álitsgjafa settum við saman lista af föngulegum folum sem eiga það sameignlegt að ganga lausir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.