Björgvin Franz búinn að taka fram leðurbuxurnar Íris Hauksdóttir skrifar 21. september 2023 20:00 Björgvin Franz glæðir lífi í rokkstjörnuna Jim Morrison í Háskólabíói. aðsend „Það er ótrúlegur heiður að fá að fá að syngja þessi lög og heiðra minningu söngvara sem ég hef elskað síðan ég var 14 ára,“ segir Björgvin Franz Gíslason sem um helgina bregður sér í hlutverk Jim Morrisson.
Rokkstjarnan hefði fagnað 80 árum en hljómsveit hans, The Doors naut gríðarlegra vinsælda á sjöunda og áttunda áratugnum. Sveitin var stofnuð í Los Angeles og samanstóð af söngvaranum Jim Morrisson, gítarleikaranum Ray Manzarek og trommaranum John Densmore. Lifandi undirleikur og sögustund um leið Í tilefni afmælissins er öllu tjaldað til í Háskólabíói þar sem hópur listamanna kemur saman og heiðrar minningu sveitarinnar. Afmælissýningin er með lifandi undirleik en um leið sögustund um líf og örlög þessa merka forsprakka hljómsveitarinnar. Björgvin Franz vann Grímuverðlaunin sem söngvari ársins.aðsend Söngvari ársins á Grímu verðlaununum, Björgvin Franz lifnar við í hlutverki Morrison ásamt hljómsveitinni The Doors tribute band sem leikur undir öll helstu lög sveitarinnar. Sérstakur sögumaður er Vera Illugadóttir sem mun varpa ljósi á sögu Morrisons og hljómsveitarinnar. Sviðsetning er í höndum Gretu Salóme. „Ég hef elskað þennan söngvara frá því ég var unglingur eða síðan myndin með Val Kilmer kom út. Ég tók þessa aðdáun mína svo skrefinu lengra fyrir tæpum tuttugu árum á Gauki á Stöng með sömu snillingum og ég fæ að deila sviðinu með núna á laugardaginn. Þeir eru augljóslega bestu mennirnir í þetta enda Doors aðdáendur sjálfir og snillingar í að ná þessu 70´s sándi og væbi sem var í gangi á þessum tíma. Á þeim tíma sem Björgvin og félagar trylltu líðinn á Gauknum mætti söngkonan Pink í salinn en hún var stödd hér á landi. „Hún var að spila á Íslandi og fylgdist meðal annars með okkur flytja Light My Fire. Eftir tónleikana sagðist hún hafa verið mjög sátt sem gladdi okkur mikið. Björgvin Franz í hlutverki Morrison fyrir nítján árum. aðsend Fyrr um daginn vorum við að hita upp og höfðum útidyra hurðina opna til að fá betra loft í salinn. Inn gengu bandarísk hjón sem áætluðu að þetta væru opnir tónleikar og settust í salinn. Þau hlustuðu gaumgæfilega og klöppuðu mikið. Eftir að æfingunni lauk komu þau að tali við okkur og sögðust hafa séð The Doors á skemmtistaðnum Whiskey a Go Go á Sunset Blvd í Los Angeles og hefðu því samaburð. Ég mun aldrei gleyma því sem þau sögðu næst: You sound just like them. Björgvin þykir minna mjög á rokkstjörnuna. aðsend Þegar Björgvin Þór og Franz Gunnarsson hjá Nordic Live events vildu svo halda upp á 80 ára afmæli Jims slógum við gamla Doors Tribute Bandið til en núna verður gengið skrefinu lengra og förum í enn leikrænni átt þar sem rokkstjarnan Vera Illuga fer yfir ævi Jims og Doors á sinn einstaka hátt á sviðinu í máli og myndum. Tónleikarnir fara fram í Háskólabíói laugardaginn 23. september. aðsend Það verður geggjuð sérhönnuð grafík við hvert lag uppi á skjá og það verða mikið af óvæntum uppákomum alveg frá því að fólk kemur inn í anddyrið og frá því að það kemur út. Við ætlum að skapa heildræna upplifun og taka það í gott LA partý frá árinu 1967. Við erum orðin gríðarlega peppuð og ég er búinn að taka fram leðurbuxurnar svo partýið má hefjast mín vegna.“
Tónlist Tónleikar á Íslandi Menning Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira