Innlent

Mót­mælin síðasta úr­ræði til að koma í veg fyrir veiðar

Lovísa Arnardóttir og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa
Micah segir Anahitu ekki vera með vatn eða mat og að hann óttist öryggi hennar um borð í hvalveiðiskipinu.
Micah segir Anahitu ekki vera með vatn eða mat og að hann óttist öryggi hennar um borð í hvalveiðiskipinu. Vísir/Vilhelm

Kvikmyndagerðarmaðurinn og hvalveiði-mótmælandinn Micah Garen segir það síðasta úrræði Anahitu Babaei að fara um borð í hvalveiðiskipið til að koma í veg fyrir að Kristján Loftsson haldi til hvalveiða í dag. 

Micah hefur verið við hvalveiðiskip Hvals hf. síðan í nótt og fylgdist með Anahitu Babaei, öðrum mótmælandanum, klifra upp í mastur skipsins.

„Lögreglan og slökkvilið voru mætt frekar fljótt og slökkviliðið fór strax upp í körfu til hennar. Ég gat aðeins horft héðan af höfninni en mér skilst að þeir hafi reynt að toga hana niður. Þau tóku af henni töskuna og símann,“ segir Micah og að hans mati hafi slökkviliðið verið mjög aðgangshart í aðgerðum sínum. Sérstaklega með tilliti til þess að mótmælin eru ekki ofbeldisfull og að ekkert sé búið að skemma í skipinu.

„Ég var hissa að sjá þetta. En svo fóru þeir,“ segir Micah.

Kristján Loftsson heldur líklega til veiða í dag nú þegar veður er orðið betra en Micah á þó ekki von á því að Anahita og Eliza, hinn mótmælandinn, komi niður af fúsum og frjálsum vilja.

„Miðað við það sem ég veit er þetta síðasta úrræði Anahita,“ segir Micah.

Viðkvæmt mál

Spurður hvort að hún sé með mat tekur hann sé langa stund til að svara og á augljóslega erfitt með það vegna tilfinninga sinna.

„Þetta er viðkvæmt af tveimur ástæðum. Önnur er sú að langreyðar sem eru í útrýmingarhættu eiga nú í hættu að vera veiddir og hin er sú að hér er einstaklingur að setja sig í mikla hættu til að reyna að koma viti fyrir fólk. Það vill enginn gera þetta svona. Hún vill það ekki en þetta er hennar síðasta úrræði. Af hverju þarf hún að gera þetta?“ spyr hann og segist óttast um öryggi hennar.

Spurður hvort að hann telji þessa aðgerð munu hafa raunveruleg áhrif segir Micah vonast til þess. Hann segir allan heiminn fylgjast með og að það sé brjálæði að einn maður fái að veiða þegar svo margt segi að það ætti ekki að gera það. 

„Ég held að við þurfum öll að draga djúpt andann og skilja að þessar fallegu verur, langreyðarnar, þurfa á vernd að halda. Við ættum að gera allt sem í valdi okkar stendur til að tryggja það öryggi.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×