Kári hefur komið ferskur inn og með mikla fagmennsku Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. ágúst 2023 10:00 Kári Árnason með Íslandsbikarinn og bikarinn eftir tvöfaldan sigur Víkinga sumarið 2021. Þeir eiga enn möguleika á að endurtaka leikinn í ár en þá með Kára sem yfirmann knattspyrnumála. Vísir/Hulda Margrét Framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Víkings hrósar Kára Árnasyni fyrir starf hans síðustu ár en Kári hætti að spila og fór að stjórna málum á bak við tjöldin hjá félaginu.
Vikingar hafa átt gott sumar og góð undanfarin ár. Liðið hefur unnið fjóra stóra titla í karlafótboltanum frá 2019 og vann síðan sinn fyrsta stóra titil í kvennafótboltanum í sumar. Karlaliðið á líka góða möguleika á að bæta við titlum í sumar enda með ellefu stiga forskot í Bestu deildinni og komið í bikarúrslitaleikinn. Kvennaliðið á einnig möguleika á að vinna tvöfalt, þær eru búnar að vinna bikarinn og geta einnig unnið Lengjudeildina og komist upp í Bestu deildina. Svava Kristín Gretarsdóttir ræddi við Harald Haraldsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Víkings, á dögunum og þá meðal annars um Kára Árnason sem tók við sem yfirmaður knattspyrnumála þegar hann setti knattspyrnuskóna sína á hilluna haustið 2021. „Kári kemur þarna inn og hann gegnir stöðu yfirmanns knattspyrnumála. Myndir þú telja það mikilvæga stöðu hjá knattspyrnufélagi í dag,“ spurði Svava Kristín Gretarsdóttir. Vildu koma heim til að deyja „Já hún er alveg nauðsynleg. Gott að þú kemur inn á þetta því það sem gerist líka hérna í Víkingi árið 2019 er að Kári (Árnason) og Sölvi (Geir Ottesen) koma heim. Þeir voru nú ekki þessir dæmigerðu ungu leikmenn sem við vorum að sækja heldur gamlir karlar í raun og veru. Þeir vildu koma heim til að deyja og þeir lögðu allt á sig til að vinna þennan fyrsta titil,“ sagði Haraldur V. Haraldsson. „Svo þekkjum við söguna frá 2021 þegar við vinnum tvöfalt og þættina sem Stöð 2 gerði um það lið. Það var eins og einhver lygasería, það handrit. Varðandi yfirmann knattspyrnumála. Kári hefur komið mjög ferskur inn í það og leiðir öll þessi leikmannamál. Leikmannasölur og samskipti við erlend félög,“ sagði Haraldur. Mikilvæg staða „Þetta er mjög mikilvæg staða og hefur reynst okkur góð ákvörðun að fara í. Þarna er komin miklu meiri fagmennska í kringum hlutina heldur en var. Þetta var kannski á einhverjum stjórnarmanni samhliða skrifstofunni að sjá um eitthvað. Þegar þú ert með menn í hlutastarfi í þessu þá er ekki alveg saman fagmennskan. Kári kemur inn mjög öflugur í þetta,“ sagði Haraldur eins og sjá má hér fyrir neðan. Klippa: Haraldur um Kára Árnason og starfið hans
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Lengjudeild kvenna Mest lesið „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Íslenski boltinn Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Enski boltinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Körfubolti Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool Enski boltinn „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Enski boltinn Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Fótbolti Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Enski boltinn Fleiri fréttir Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Sjá meira