Hætta við að fá Paqueta eftir ásakanir um brot á veðmálareglum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. ágúst 2023 22:01 Lucas Paqueta er ekki á leið til Manchester City. Clive Rose/Getty Images Englandsmeistarar Manchester City eru hættir við að reyna að fá miðjumanninn Lucas Paqueta til liðs við sig frá West Ham eftir að upplýst var um að leikmaðurinn sætir nú rannsókn vegna mögulegra brota á veðmálareglum enska og Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA.
City og West Ham höfðu komist að samkomulagi um að Englandsmeistararnir myndu kaupa leikmanninn á 80 milljónir punda, sem samsvarar um 13,5 milljörðum króna. Eftir að tilkynnt var um að leikmaðurinn sæti rannsókn fyrir brot á veðmálareglum ensku úrvalsdeildarinnar er nú orðið ljóst að ekkert verður af vistaskiptum Brasilíumannsins. Heimildarmenn Sky Sports segja þó frá því að enn sé möguleiki á því að Paqueta færi sig frá West Ham yfir til City þegar félagsskiptaglugginn opnar á nýjan leik í janúar á næsta ári. Samkvæmt fréttamiðlum í Englandi, þar á meðal Sky Sports, ku Paquetá hafa brotið veðmálareglur er hann lék enn í heimalandi sínu Brasilíu. Leikmaðurinn neitar sök. Rannsóknin hófst hins vegar þegar óvenju margir veðjuðu á það að Paqueta myndi fá gult spjald í viðureign West Ham og Aston Villa í mars á þessu ári. Leikmaðurinn nældi sér einmitt í spjald í þeim leik er hann braut á John McGinn á 70. mínútu leiksins.
Enski boltinn Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Sjá meira