Fótbolti

Arnór Ingvi skoraði tvö og Guðmundur Baldvin þreytti frumraun í stórsigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Arnór Ingvi var á skotskónum í kvöld.
Arnór Ingvi var á skotskónum í kvöld. Twitter@ifknorrkoping

Fjórir Íslendingar komu við sögu í leikjum dagsins í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Íslendingalið Norrköping vann öruggan 3-0 sigur á Gautaborg þar sem Arnór Ingvi Traustason var allt í öllu en hann skoraði fyrstu tvö mörk Norrköping í leiknum.

Arnór Ingvi spilaði allan leikinn og þeir Ísak Andri Sigurgeirsson og Andri Lucas Guðjohnsen komu inn af varamannabekknum á 81.mínútu en þá var staðan orðin 3-0.  Adam Ingi Benediktsson var varamarkvörður Gautaborgar í dag.

Guðmundur Baldvin Nökkvason var í byrjunarliði Mjallby í fyrsta sinn eftir að hafa gengið til liðs við félagið frá Stjörnunni á dögunum en liðið heimsótti Varberg BoIS í dag.

Guðmundur Baldvin lék fyrstu 73 mínúturnar í 0-3 sigri en staðan var 0-2 þegar Guðmundi var skipt af velli.

Mjallby lyfti sér þar með upp í 7.sæti deildarinnar en Norrköping er í 5.sæti




Fleiri fréttir

Sjá meira


×