Nýjung í langtímaleigu: skiptibílar Brimborg 31. júlí 2023 09:42 „Við vitum að viðskiptavinir okkar þurfa stundum aðeins öðruvísi bíl tímabundið en þeir eru að leigja til lengri tíma, til dæmis í tengslum við ferðalög. Oft er þetta ástæðan fyrir því að fólk annað hvort kaupir eða leigir stærri og dýrari bíl en þörf er á dags daglega," segir Anton Smári Rúnarsson, framkvæmdastjóra bílaleigu Brimborgar, en hann segir skiptibíla geta verið bylting á markaðnum.
Þægindi er meginástæða þess að fólk tekur bíl á langtímaleigu og þar er sveigjanleiki lykilatriði. Nú bætir Brimborg enn frekar í þægindin, eykur sveigjanleika og kynnir skiptibíla fyrir viðskiptavini langtímaleigunnar. Samkvæmt Antoni Smára Rúnarssyni, framkvæmdastjóra bílaleigu Brimborgar, geta skiptibílar verið bylting á markaðnum. „Við vitum að viðskiptavinir okkar þurfa stundum aðeins öðruvísi bíl tímabundið en þeir eru að leigja til lengri tíma, til dæmis í tengslum við ferðalög. Oft er þetta ástæðan fyrir því að fólk annað hvort kaupir eða leigir stærri og dýrari bíl en þörf er á dags daglega. Þess vegna ákváðum við að bjóða upp á skiptibíla sem virka þannig að leigjendur langtímaleigubíla frá Brimborg geta komið og fengið t.d. sjö manna bíl, bíl með dráttarbeisli eða skíðafestingum svo eitthvað sé nefnt, í nokkra daga eða vikur á mjög hagstæðu verði.“ „Fólk getur til dæmis verið með meðalstóran rafbíl í langtímaleigu en skipt yfir á rúmgóðan jeppa sem dregur auðveldlega hjólhýsi langar vegalengdir í sumarfríinu eða þegar þörf er á sendibíl í nokkra daga. Það eru í rauninni óteljandi ástæður fyrir því hvers vegna fólk þarf á skiptibíl að halda og við erum mjög ánægð að geta boðið fólki þennan sveigjanleika í langtímaleigunni,“ segir Anton Nýr langtímaleiguvefur Brimborgar Ekki er langt síðan nýr og notendavænn vefur fór í loftið. „Við erum að kynna skiptibílahugtakið núna í tengslum við glænýjan langtímaleiguvef sem er með fullkominni leitarvél fyrir nýja og notaða bíla í langtímaleigu frá Brimborg. Fólk sér í rauntíma nákvæmlega hvaða bílar eru í boði og fer í gegnum auðvelt ferli á vefnum til að panta. En að sjálfsögðu mæta líka margir til okkar og prófa bílana áður.“ Opnunartilboð á Polestar 2 í langtímaleigu Á vefnum verða alla jafna frábær tilboð á nýjum og notuðum bílum í langtímaleigu, og stórstjarnan Polestar 2 sem er gríðarlega öflugur rafbíll fær sviðsljósið fyrst um sinn. „Polestar 2 hefur í gegnum tíðina verið vinsælasti nýi bíllinn í langtímaleigu hjá Brimborg og því viljum við bjóða hann á frábæru verði í tengslum við opnunina. Þeir renna út hjá okkur eins og ís í brauðformi á góðum sumardegi, það er takmarkað magn af þeim í boði svo fyrstur kemur, fyrstur fær.“ Á nýja langtímaleiguvef Brimborgar verða alla jafna frábær tilboð á nýjum og notuðum bílum í langtímaleigu. Stórstjarnan Polestar 2, sem er gríðarlega öflugur rafbíll, fær sviðsljósið fyrst um sinn. „Rúsínan í pylsuendanum er svo að Brimborg er að byggja upp Hraðhleðslunet sem er opið öllum rafbílum og viðskiptavinir okkar sem eru á rafbíl fá sérkjör á rafhleðslu fyrir bílana sína í því. Það er því minni þörf en áður að vera með hleðslustöð heima hjá sér. En hafi viðskiptavinir aðstöðu til þess þá geta þeir pantað hleðslustöð ásamt uppsetningarþjónustu hjá Brimborg með langtímaleigubílnum sínum, allt bókanlegt á vefsíðunni.“
Bílar Bílaleigur Mest lesið Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Atvinnulíf Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Viðskipti innlent Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Strætómiðinn mun kosta 690 krónur eftir áramót Neytendur Afsláttardagar skýri skyndilega hækkun bensínverðs Neytendur Fleiri fréttir Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent