Lífið

Fortíðin og flugeldar renna í eitt á nýrri plötu Auðar

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Auðunn Lúthersson er fæddur í Bandaríkjunum þar sem foreldrar hans voru búsettir um tíma. Fyrir vikið er hann bandarískur ríkisborgari.
Auðunn Lúthersson er fæddur í Bandaríkjunum þar sem foreldrar hans voru búsettir um tíma. Fyrir vikið er hann bandarískur ríkisborgari. Aðsend

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, þekktur undir listamannanafninu Auður, gaf út plötuna Útvarp úlala á miðnætti. Platan inniheldur fimm lög úr ólíkum áttum sem Auður samdi og tók upp.

„Lögin, tónlistarstefnurnar, fortíðin og flugeldar renna í eitt á Útvarp Úlala,“ segir Auður sem samdi lögin víðsvegar um landið og í Los Angeles Bandaríkjunum þar sem hann býr. 

Plötumslag Útvarps Úlálá vann Auður með ljósmyndaranum Ari Michelson í Los Angeles en hann hefur unnið með listamönnum á borð við Justin Timberlake, Timbaland, Lenny Kravitz, Brendan Fraser og Mindy Kaling. Myndvinnsla var unnin af Emerald M og Ágúst Elí.Aðsend

Fjöldi tónlistarmanna komu að gerð plötunnar. Þar á meðal Rubin Pollock úr Kaleo, Ari Bragi Kárason, Sigtryggur Baldursson, Ellert Björgvin Schram, Daníel Friðrik Böðvarsson, Eygló Hilmarsdóttir, Magnús Öder og Arnar Guðjónsson.

Þá komu Magnúss Öder og Arnar Guðjónsson og mastering hjá Glenn Schick að hljóðblöndun.

Ekki á leið heim

Auður flutti vestur um haf í byrjun árs og segist ekki vera á heimleið. Hann er með mörg járn í eldinum um þessar mundir þar á meðal samtarf með söngkonunni Diarra Sylla, sömuleiðis Sally Han, útsetningu fyrir hljómsveitina Bella Dose ásamt því að koma fram sjálfur.

Hann segir Los Angeles höfuðborg hugverkanna þar sem fyrirmyndir hans í tónlist starfa. Auður keypti sér farmiða aðra leið út fyrir heimsfaraldur. Hann er með bandarískan ríkisborgararétt og getur því dvalið vestanhafs eins og hann lystir.

„Ég er þakklátur fyrir að vera kominn út og er spenntur fyrir framhaldinu þar sem ég er sífellt að kynnast nýju hæfileikaríku fólki,“ segir Auður sem starfar við lagasmíð og framleiðslu dag frá degi.

Lítill heimur fullur af tækifærum

„Það er ekkert þak á því sem maður getur gert hérna úti,“ segir Auður. Hann hafi hitað upp fyrir vini sína á nokkrum litlum stöðum á Venice Beach og miðbæ LA. Þá hefur hann einnig gengið í nokkur verkefni sem gítarleikari.

Auður gaf út lagið Tárin falla hægt með Bubba Morthens í fyrra. Lagið hefur notið mikilla vinsælda.

Hægt er að hlusta á plötuna Útvarp úlala á öllu helstu streymisveitum.


Tengdar fréttir

Talar minna eftir að gamall draumur rættist

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúhersson, betur þekktur undirlistamannanafninu Auður, segir gamlan draum hafa ræst þegar hann flutti til Los Angeles nýlega.

„Bið um að vera dæmdur út frá gjörðum mínum en ekki því sem er ósatt“

Það er í grunninn munur á að trúa orðrómum og trúa þolendum. Ég get ekki tekið ábyrgð á því sem er ósatt, segir tónlistarmaðurinn Auður. Hann segist axla ábyrgð á ásökunum kvenna sem hafa sakað hann um að hafa brotið á sér, verið ógnandi og að hafa farið yfir mörk en hafnar algjörlega orðrómum um þöggunarsamninga og brot gegn ólögráða stúlkum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.